154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[13:05]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ef það kemur breytingartillaga við þetta frumvarp, sem ég tel vera mjög mikilvægt, um að mannréttindastofnun starfi ekki á vegum Alþingis, hún verði hluti af framkvæmdarvaldinu, þá má segja sem svo: Já, heyrðu, þetta frumvarp fékk afgreiðslu í vitlausri nefnd. Það átti að vera hjá allsherjar- og menntamálanefnd. Þingskapalög segja það einfaldlega að um málefni Alþingis og stofnana þess skuli fjalla í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Þessi stofnun er ekki orðin stofnun Alþingis fyrr en búið er að samþykkja lögin. Þannig er nú það. Lög um ríkisendurskoðanda eru lög um ríkisendurskoðanda, þau eru ekki frumvarp um ríkisendurskoðanda. Hérna erum við að tala um lagafrumvarp sem á eftir að fá þinglega meðferð, og það er um mannréttindamál. Meginhlutverk stofnunarinnar eru mannréttindi á Íslandi og þá á þetta heima í allsherjar- og menntamálanefnd en ekki hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ef það verður hins vegar samþykkt að stofnunin verði undirstofnun Alþingis, þá fer þetta undir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd en ekki fyrir þann tíma.