154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Mannréttindastofnun Íslands.

239. mál
[13:13]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Að sjálfsögðu er þetta mannréttindamál, en þetta er líka mál sem snýst um að ný stofnun verði stofnuð undir forystu Alþingis Íslendinga, að Alþingi kjósi stjórn í þeirri stofnun og tryggi viðunandi fjárveitingar til að tryggja sjálfstæði stofnunarinnar. Þannig að ég tel ágætisrök hafa verið færð fyrir nefndarvísuninni, sem ég tel nú að hv. þingmaður sé að ýja að hér í þessari fyrirspurn.