Samkeppniseftirlit.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka málshefjanda þessa umræðu sem er mjög mikilvæg. Samkeppnislög eru gríðarlega mikilvæg í nútímasamfélagi. Ég var nú svo heppinn í Bandaríkjunum, þegar ég lærði lögfræði þar, að ég las samkeppnisrétt, skemmtilegasta fag sem til er innan lögfræðinnar. Þaðan kemur þetta allt saman, með Sherman-lögunum 1890. Þeim var hins vegar ekki beitt fyrr en eftir 1900 með Theodore Roosevelt, þannig að það var pólitíkin sem stjórnaði því. Pólitíkin getur haft mjög mikil áhrif á framkvæmd samkeppnislaga og eftirfylgni. Og eins og ástandið er í dag hér á Íslandi þá er mjög mikilvægt að þær stofnanir sem hafa með samkeppniseftirlit að gera og héraðssaksóknari, sem er með hina gömlu efnahagsbrotadeild, fái nægilegt fjármagn til að sinna störfum sínum. Það er grundvallaratriði.
Einn mjög þekktur fræðimaður á sviði samkeppnisréttar í Bandaríkjunum, Posner, sagði að samkeppnisreglur og samkeppnislög væru mannréttindi hins kapítalíska hagkerfis. Það er rétt. Þetta er líka grundvallaratriði í litlum samfélögum. Þar verða lögin að vera strangari og það verður að vera meira eftirlit í litlum samfélögum eins og á Íslandi vegna þess að það er svo mikil hætta á fákeppni, og má raunar kalla íslenskt samfélag fákeppnissamfélag. Þess vegna er svo gríðarlega mikilvægt að samkeppniseftirlitið í landinu verði eflt enn frekar. Ég tel að við ættum að skoða það t.d. hvort það ætti ekki að hafa hegningarlagaákvæði sem lýtur sérstaklega að fjársvikum á markaði. Við erum með í 248. gr. fjársvikaákvæði og það mætti koma 248. gr. a sem lyti að samkeppnisbroti á markaði, sem er þá fangelsisrefsing til æðstu stjórnenda. Í dag geta þeir sætt sektum eða fangelsi allt að sex árum, starfsmenn eða stjórnarmenn, varðandi samráð. Það lýtur ekki að misnotkun á markaðsráðandi stöðu t.d., sem er stórhættulegt. En ég tel að hér sé um mjög mikilvægt málefni að ræða og hlakka til umræðunnar.