154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Samkeppniseftirlit.

[13:50]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Virðulegi forseti. Við höfum verið rækilega minnt á það að undanförnu hve mikilvægt það er fyrir okkur Íslendinga í fámennu landi að hafa virkt og öflugt samkeppniseftirlit sem ekki er undir hælnum á stórfyrirtækjum og valdaklíkum sem sumar hverjar sækja í að brjóta undir sig eða knésetja smærri samkeppnisaðila á markaði í krafti fákeppnisstöðu og/eða ólöglegs samráðs og hafa þannig fé af almenningi og fyrirtækjum sem ekki eiga margra aðra úrkosti en að sæta þeim afarkostum og kjörum sem slíkt ólöglegt samráð getur gefið af sér. Staða landsins er sérlega viðkvæm sem eyja í Norður-Atlantshafi, umlukið sjó sem þarf að treysta á aðföng sjóleiðina að miklu leyti sem og sem útflutningsleið. Þá er samkeppnisumhverfið á mörgum sviðum sérlega viðkvæmt í landinu vegna smæðar okkar og búsetumynsturs.

Sagan sem hófst yfir smørrebrød við Suðurlandsbraut, meint ólöglegt samráð Samskipa og Eimskipa, fyrirtækja með yfirburðastöðu í flutningum bæði á sjó og landi, er nöturleg. Ólöglegt samráð gegn samkeppnisaðilum, gegn þeim sem nýttu þjónustu þeirra og átti oft á tíðum ekki annarra úrkosta. Almenningur, verslanir, þjónustufyrirtæki og bændur voru hlunnfarin ásamt mörgum öðrum. En það var ekki bara smørrebrød. Framkvæmdastjórar Eimskipa og Samskipa hittust á Mokka og lögðu þar á ráðin gegn flutningaþjónustu samkeppnisaðilans Íslandspósts. Afdrif útboðs sem Íslandspóstur stóð fyrir á þessum tíma og fyrirtækin sóttu í á víxl en ekki í samkeppni hvort við annað verða nú séð í nýju ljósi. Íslandspóstur hlýtur að skoða stöðu sinnar vegna alvarleika brotanna sem og aðrir smærri flutningsaðilar.

Það þolir heldur enga bið að rekja saman tengda aðila í sjávarútvegi til samræmis við það sem annars staðar gerist. Það verður að grípa til aðgerða til að vinda ofan af ógegnsærri samþjöppun veiðiheimilda. Þannig tel ég að við treystum heilbrigða viðskiptahætti og gagnsæi innan lands sem utan. Það er mikilvægt að ekki verði ráðist í neinar þær breytingar á Samkeppniseftirlitinu (Forseti hringir.) sem veikja stöðu þess til að sinna hlutverki sínu. Við þurfum öflugt Samkeppniseftirlit með mannafla og fjármuni til að sinna sínum verkefnum.