154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Samkeppniseftirlit.

[14:01]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Frú forseti. Heilbrigð samkeppni meðal fyrirtækja sem selja vörur og veita þjónustu er mikilvæg í hverju samfélagi. Hún hvetur fyrirtækin til dáða, stuðlar að lægra verði og betri þjónustu fyrir neytendur. Að sama skapi er eftirlit með því að eðlileg samkeppni ríki meðal fyrirtækja einnig mikilvæg. Samkeppniseftirlitið hefur ríkar íhlutunarheimildir í lögum. Þessum heimildum verður eftirlitið að beita á skynsamlegan hátt og þola málefnalega umræðu um þær. Eftirlitið má ekki vera seinvirkt, það má ekki draga mál svo árum skiptir og tilkynna svo seint og síðar meir að málin hafi verið látin niður falla eða séu enn til rannsóknar. Það dregur úr samkeppnishæfni atvinnulífsins, dregur úr nýsköpun og leiðir til hærra vöruverðs og færri starfa.

Samkeppniseftirlitið á Íslandi er valdamikið og þær heimildir sem það hefur ganga lengra en víðast hvar í Evrópu. Gott samstarf Samkeppniseftirlitsins og atvinnulífsins er undirstaða heilbrigðra atvinnuþátta. Fréttir síðustu daga af Samkeppniseftirlitinu og misbeitingu valds þess eru slæm tíðindi fyrir okkur öll. Það var nokkuð sláandi að sjá fréttir af því að fyrirtæki hafi verið beitt ólögmætri athugun og sektum upp á 3,5 milljónir á dag af Samkeppniseftirlitinu og eftirlitið jafnvel sakað um ógnarstjórn og einelti í garð fyrirtækja. Vinnubrögð af þessu tagi eru alvarleg. Þeir sem bera ábyrgð á því að eftirlitið beiti valdheimildum sínum með ólögmætum hætti verða að athuga sinn gang og gera hreint fyrir sínum dyrum.

Frú forseti. Ég hef lagt fram á Alþingi fyrirspurn um útvistun verkefna Samkeppniseftirlitsins. Ég tel að það ríki ekki nægilegt gagnsæi um það hverjum Samkeppniseftirlitið er að fela tiltekin verkefni við rannsókn mála og hvað eftirlitið er að greiða fyrir þau. Upplýsa þarf hvernig tryggt er að hæfisreglur séu uppfylltar við aðkeypta vinnu. Ég vona að sjálfsögðu að Samkeppniseftirlitið svari spurningum mínum hratt og vel en þingið hefur ekki sömu heimildir og Samkeppniseftirlitið og getur ekki beitt dagsektum vegna seinagangs.