Samkeppniseftirlit.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að skora á hæstv. viðskiptaráðherra að sjá til þess að Samkeppniseftirlitinu verði tryggt nægilegt fjármagn til að sinna skyldum sínum. Öflugt samkeppniseftirlit gegnir lykilhlutverki í að auka og efla traust almennings á atvinnulífinu. Fákeppni og einokun getur dregið úr atvinnufrelsi, heldur niðri frumkvæði og rétti almennings til að taka þátt í atvinnulífinu á jafnréttisgrundvelli. Fákeppni og samráð á markaði er nánast fjársvik gagnvart almenningi. Ég skora líka á hæstv. ráðherra að skoða það sérstaklega að lagaramminn um bótarétt fólks þegar markaðssamráð á sér stað, eins og í máli Eimskipa og Samskipa, sé algjörlega tryggður.
Þar komum við að skaðabótatilskipuninni sem er þriðji liður hjá málshefjanda. Það er vissulega ekki búið að samþykkja hana í íslensk lög, og ég skora á hæstv. ráðherra að fara í þá vinnu sem allra fyrst, en það má benda á að dómstólar hafa, við úrlausn, byggt á eða haft hliðsjón af efni tilskipunarinnar í dómsmálum, í skaðabótamálum. Ég get vísað í ágæta grein lögmannanna Eggerts B. Ólafssonar og Sveins Andra Sveinssonar sem heitir Samkeppnislagabrot skipafélaganna, bótaábyrgð og evrópska skaðabótatilskipunin. Ég tel að hér sé um algjört grundvallarmál að ræða.
Samkeppniseftirlit lýtur eftirliti dómstóla. Það er vert að hafa það í huga og það sýnir ákveðinn kraft núna í stjórnsýslunni, bæði sektin núna á Samskip og líka ekki síður hjá Seðlabanka Íslands gagnvart Íslandsbanka, það virðist vera aukinn kraftur í stjórnsýslunni (Forseti hringir.) til að taka á spillingu í íslensku samfélagi. Það er kannski eitthvað sem við alþingismenn ættum að taka meira til okkar, það eru kannski embættismenn í landinu sem eru að taka á meinum íslensks samfélags en ekki við hérna í þingsal.