154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

Samkeppniseftirlit.

[14:08]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir þessa mikilvægu umræðu. Það er alveg ljóst að hún er mjög þörf. Ég verð að segja að það skýtur skökku við að sá flokkur sem talar hvað mest fyrir frelsi sýnir mestu andstöðuna gegn þeirri stofnun sem starfar í því skyni að tryggja efnahagslegt frelsi. Eftirlit með virkri samkeppni og aðgerðir til að tryggja gagnsæi á samkeppnismarkaði skila sér í formi efnahagslegs ávinnings til samfélagsins. Það er alveg ljóst.

Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins frá 2008 kom fram að aðgerðir til að viðhalda eða efla samkeppni stuðla að hraðari endurreisn atvinnulífsins í kjölfar efnahagserfiðleika. Ég verð að minnast á verðbólguna sem herjar á heimili landsins en efnahagsástandið hérlendis gefur enn meira tilefni til að efla Samkeppniseftirlitið til að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Samkeppnishamlandi aðgerðir líkt og samráð geta leitt til hærra verðs á vörum en ella og því er það áhyggjuefni, ekki síst í ljósi efnahagsástandsins sem nú blasir við, að í stað þess að efla Samkeppniseftirlitið hyggst ríkisstjórnin framkvæma aðgerðir sem munu að öllum líkindum hamla Samkeppniseftirlitinu í eftirliti sínu. Jú, ég er væntanlega að tala um áform ríkisstjórnarinnar um sameiningu Neytendastofu og Samkeppniseftirlitsins en ásetningurinn á bak við þessa sameiningu er frekar augljós. Stjórnsýslufyrirkomulag þessara tveggja stofnana samkvæmt eldri lögum var sambærilegt því sem þessi ríkisstjórn hyggst endurvekja en samkvæmt eldri lögum gegndu samkeppnisyfirvöld núverandi hlutverkum Neytendastofu líka. Það fyrirkomulag hlaut gagnrýni og fjöldi ólíkra verkefna þótti draga úr áherslu á samkeppnismálin og því var lögfest núverandi fyrirkomulag, þar sem Samkeppniseftirlitið einblínir á samkeppnismál — það er bara lögfest í lögum nr. 45, eða hvað, ég man það ekki.

Virðulegi forseti. Það eru fordæmi fyrir því að samræmd verkefni Neytendastofu og Samkeppniseftirlitsins virkuðu ekki nógu vel í framkvæmd og þar af leiðandi var eftirlitið með samkeppnisbrotum veikara en það er í dag sem virðist vera nákvæmlega tilgangur þessarar sameiningar hjá hæstv. ríkisstjórn (Forseti hringir.) og þykir mér það einstaklega miður.