154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

fasteignalán til neytenda.

171. mál
[15:45]
Horfa

Flm. (Ásthildur Lóa Þórsdóttir) (Flf) (andsvar):

Ég vil aftur þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni. Þetta er bara mjög góð athugasemd hjá honum. Við erum í þessu frumvarpi meira að beina sjónum að fjársterkum einstaklingum sem eru að koma inn á húsnæðismarkaðinn með þessum hætti. Það er náttúrlega bara þekkt að hér hafa komið stórfyrirtæki og keypt upp gríðarlega margar íbúðir á sérkjörum. Ég veit ekkert á hvaða kjörum SKEL keypti en það er þekkt að leigufélög, eins og í Ölmu og fleiri, fengu íbúðir á gjafverði eftir hrun og ýmislegt þess háttar. Þetta er náttúrlega eitthvað sem þarf að taka á. Það er alveg rétt að þetta frumvarp myndi ekki ná til þessara aðila enda kannski mjög erfitt að eiga við það þegar verktakar geta allt í einu selt kippu af íbúðum þegar allt er stopp út af gríðarlega háum vöxtum og þeir eru við það að fara á hausinn. Það er náttúrlega eitthvað sem erfiðara er að eiga við. En ég er alveg sammála því að það þarf að koma einhverjum böndum á það líka hvernig fyrirtæki geta komið og keypt upp húsnæði til að hagnast á því síðar meir.