154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

almannatryggingar.

111. mál
[16:37]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Ég tel að hér sé um mjög mikilvægt mál að ræða, eitt af kjarnamálum Flokks fólksins, eitt helsta baráttumálið. Það er hin — ég ætlaði að segja 69. gr. en það er búið að breyta því í 62. gr. laganna. Við þingmenn Flokks fólksins erum meðflutningsmenn á þessu frumvarpi, svo það liggi fyrir. Þau félagasamtök sem skiluðu umsögn í fyrra, á fyrra þingi; Efling, Geðhjálp, Landssamtökin Þroskahjálp, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Öryrkjabandalagið, lýstu yfir stuðningi við þetta frumvarp og taka undir markmiðið, eins og Öryrkjabandalag Íslands.

Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um er taflan sem er í greinargerð með frumvarpinu. Ég tel að bara sex sinnum hafi örorkulífeyrir haldið í við launaþróun og vísitölu neysluverðs og ef ég skil það sem segir um uppsafnaða kjaragliðnun, dálkinn lengst til hægri, er það á hverju ári? Er þetta uppsöfnuð kjaragliðnun núna í ár, 2023 — þetta er þá bara miðað við stöðuna innan ársins? (Gripið fram í: Já.) Það er 108% kjaragliðnun í ár. Hún er aldrei undir 100%. Hún er upp í 160–170% innan hvers árs. Er hv. þingmaður með tölurnar fyrir uppsafnaða kjaragliðnun frá 1997? (Gripið fram í.) En það er innan hvers árs. Ef hann gæti aðeins útskýrt þessa töflu nánar fyrir mér. Það væri gaman að heyra aðeins frekari útlistun á þessari merkilegu töflu sem sýnir það svart á hvítu hver kjaragliðnunin er, eða við getum sagt þjófnaðurinn. (Forseti hringir.) Ég hef fengið gagnrýni fyrir að nota orðið kjaragliðnun þar sem þetta er þjófnaður að mati öryrkja og aldraðra. En það er önnur saga.