almannatryggingar.
Forseti. Já, framsetning á prósentum er alltaf erfið. En sem sagt 164,12% frá 1967 þýðir ekki 164,12% hækkun, það þýðir 64,12% hækkun af því að heildin er þarna inni í. Það þyrfti sem sagt að margfalda með 1,6412 til þess að fá töluna sem ætti að vera. Þetta er sem sagt margfeldið sem þyrfti að setja á núverandi lífeyri til að ná réttum lífeyri. Þannig að það er ekki 100,8% kjaragliðnun á þessu ári heldur 0,8% kjaragliðnun það sem af er þessu ári, í júlí á þessu ári. Auðvitað er ekki tvöföldun þarna á launaþróun miðað við lífeyri heldur 0,8% þróun á þessu ári. Þetta er svona lítið á hverju ári. Safnast þegar saman kemur og hefur verið hvað hæst 8,92% árið 2008 þegar það var lækkað sérstaklega og það breyttist mest árið 2012 í þágu lífeyrisþega þegar það var 4,11% meiri hækkun en launaþróun, í því tilviki, var. Launaþróun þá var 7,77% en hækkunin var 11,88%. Ég vona að það komist til skila því að prósentuframsetning er stundum erfið.