almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég tel að hér sé um mikilvægt frumvarp að ræða. Eins og kemur fram í greinargerðinni þá höfum við ekki staðið við lög, eða ákvæði 62. gr., gömlu 69. gr., varðandi lífeyrisgreiðslur til öryrkja og aldraðra, til lífeyrisþega, samkvæmt almannatryggingum. Það er mjög bagalegt og ég skil óánægju og reiði lífeyrisþega almannatrygginga yfir þessum svikum, eins og við getum orðað það. Þeir fá greiðslu samkvæmt almannatryggingalögum, lífeyrisgreiðslur samkvæmt almannatryggingalögum, og þeir horfa á lögin og sjá þessa grein um það hversu mikið lífeyrir þeirra á að hækka á hverju einasta ári. Það er alveg klárt mál að Alþingi hefur aldrei staðið við þetta í fjárlögum hvers árs. Í fjárlögum fyrir næsta ár, 2024, er byggt á spá Hagstofunnar um 4,9% verðbólgu, þ.e. það á að hækka lífeyri almannatrygginga um 4,9%. Það sama átti sér stað í ár. Í áætlun fjárlaga þessa árs var upphafleg hækkun lífeyris almannatrygginga ekki í samræmi við verðbólgu. Þá kom ríkisvaldið inn í maímánuði og sagði: Við ætlum að hækka vegna þess að verðbólgan er hærri en upphaflega var áætlað. En það var ekki fyrr en í maí, þannig að lífeyrir almannatrygginga hækkaði ekki frá áramótum. Ef það mun gerast, sem er mjög líklegt, að verðbólgan verði hærri en 4,9%, eins og Hagstofan gerir ráð fyrir, og hærri en hækkun lífeyris almannatrygginga sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu, þá hlýtur ríkisvaldið, stjórnvöld, ríkisstjórnin, að koma með hækkun til lífeyrisþega almannatrygginga í samræmi við verðbólguna á næsta ári. Minn flokkur mun gera þá kröfu. Segjum að lífeyrir almannatrygginga verði hækkaður frá maí, þá mun minn flokkur gera þá kröfu að það verði reiknað frá áramótum. Ef verðbólgumælingarnar sýna að verðbólga sé meiri á ársgrundvelli en 4,9% þá eiga lífeyrisþegar klárlega rétt á því að sú hækkun verði frá áramótum.
Þetta er það lagaákvæði sem hefur valdið einna mestri ólgu hjá öldruðum og öryrkjum og skapað ósætti milli þeirra og ríkisvaldsins þar sem þeir telja sig svikna. Það er mjög mikilvægt að þessi svik og þessi kjaragliðnun verði leiðrétt. Það er grundvallaratriði bara út af trausti á ríkisvaldinu, trausti á stjórnvöldum, trausti á Alþingi og vegna sáttar í samfélaginu við þessa tekjulægstu hópa samfélagsins.
Í þessu lagafrumvarpi hér um breytingu á lögum um almannatryggingar, þar sem er verið að breyta 62. gr. með þeim hætti sem hér var lýst af framsögumanni, er nánast verið að matreiða ofan í okkur hvernig hækkunin á að reiknast. Þar segir, með leyfi forseta:
„Greiðslur almannatrygginga, svo og greiðslur skv. 42. gr. og fjárhæð skv. 28. gr., skulu endurreiknaðar og þeim breytt fyrir 1. júlí ár hvert. Hagstofa Íslands reiknar og birtir fyrir 1. júní hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins fyrir næstliðið almanaksár. Við mat á launabreytingum skal Hagstofan afla skýrslna og gagna sem hún telur nauðsynleg og gera jafnframt eigin kjararannsóknir eftir því sem þörf krefur. Tryggingastofnun ríkisins uppfærir krónutölufjárhæðir til samræmis við tölur Hagstofunnar áður en kemur til greiðslna fyrir júlí. Krónutöluhækkanir í kjarasamningum opinberra starfsmanna skulu endurspeglaðar í krónutöluhækkunum fyrir greiðslur almannatrygginga, greiðslur skv. 42. gr. og fjárhæð skv. 28. gr. Breyting á lífeyri almannatrygginga skal þó aldrei vera lægri en sem nemur hækkun vísitölu neysluverðs fyrir næstliðið almanaksár.“
Hérna er verið að fara ofan í saumana á því hvernig framkvæmdin á að vera á núgildandi lögum. Það hefur ekki verið staðið við það af hálfu ríkisvaldsins en þessu frumvarpi er ætlað að breyta því. Það á að tryggja það að framkvæmdin verði með þeim hætti sem ég lýsti hér, muni byggja á reikningum Hagstofu Íslands miðað við meðaltal reglulegra launa starfsmanna ríkisins og að krónutöluhækkanir í kjarasamningum opinberra starfsmanna skulu endurreiknaðar í krónutöluhækkunum fyrir greiðslur almannatrygginga en þó aldrei vera lægri en sem nemur hækkun vísitölu neysluverðs.
Þetta er líka til að koma til móts við tekjulægsta hóp samfélagsins, lífeyrisþega almannatrygginga, svo að þeir geti haft traust á því sem segir í lögum sem Alþingi Íslendinga setur, að það verði framkvæmt sem stendur í lögum um almannatryggingar. Það hefur ekki verið gert vegna þess að fjárlög íslenska ríkisins á hverju ári hafa aldrei uppfyllt þá ósk eða þann vilja sem kemur fram í 62. gr. í dag. Þetta á sér stoð í stjórnarskránni, í 41. gr. stjórnarskrárinnar, þar sem segir einfaldlega að fjárveitingavaldið megi ekki greiða neitt úr ríkissjóði nema með samþykkt Alþingis og að fjárlög trompi þannig gildandi lög og vilja sem er í öðrum lögum. Þetta á sér náttúrlega stoð í efnahagsstjórn og öðru slíku, en það breytir því ekki að við getum ekki skilið tekjulægsta hópinn eftir með þá kjaragliðnun sem hefur átt sér stað frá árinu 1997.
Eins og kemur fram í töflunni og ég spurði hv. þm. Björn Leví Gunnarsson um nánar hefur ríkisvaldið frá árinu 1997, á 26 árum, einungis sex sinnum staðið við þau loforð sem voru lögfest með 69. gr. almannatryggingalaga, núverandi 62. gr. almannatryggingalaga. Það var árið 1998, 2000, 2002, 2009, 2012, 2017. Öll hin árin var ekki staðið við þetta lagaákvæði. Það er rétt sem komið hefur fram hjá Hagsmunasamtökum öryrkja og aldraðra að það er verið að svíkja þessa grein, þá viljayfirlýsingu sem kom fram í þessari grein. Við getum alveg farið í lagatæknilegar pælingar um orðin „taka mið af launaþróun“ og annað slíkt og orðin sem vitnað er til í greinargerðinni, „skulu breytast árlega“, eins og er í núverandi 62. gr., en það breytir því ekki að allir Íslendingar sem eru læsir geta lesið núverandi grein vita hvað í henni stendur. Vissulega er álit umboðsmanns Alþingis þarna, nr. 9818/2018, þar sem kemur fram að þetta sé matskennt o.s.frv., en það er ekki aðalatriðið. Íslendingar eiga að geta treyst því sem stendur í lögunum, sérstaklega þegar kemur að jafn mikilvægu máli og lífsafkomu fólks og lífeyri sem það fær frá almannatryggingum ríkisins. Það er stór hluti, það eru mjög margir Íslendingar, öryrkjar og aldraðir, sem fá eingöngu lífeyri almannatrygginga. Þetta er fátækasta fólk landsins. Þetta eru þeir sem bera minnst úr býtum. Margir hafa ekki aðgang að lífeyrissjóðum eða eiga séreignarsjóði til að framfleyta sér og þurfa að treysta algerlega á almannatryggingar. Það er því gríðarlega mikilvægt að þessi kjaragliðnun verði stöðvuð og að virt verði framkvæmd núverandi 62. gr., eins og þetta frumvarp kveður á um og sem ætti að vera hin rétta framkvæmd, á hverju einasta ári. Þannig náum við meiri sátt í samfélaginu. Þá kemur meira traust til ríkisins og meiri virðing verður borin fyrir þeirri vinnu sem á sér stað hérna á Alþingi hjá fólki, hjá tekjulægsta hópi samfélagsins.