154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

kosningalög.

6. mál
[17:28]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir yfirgripsmikla og ágæta ræðu um þetta mál sem ég tek svo sannarlega undir með þingmanninum að er mjög mikilvægt að ræða og við eigum að ræða. Ég deili hins vegar ekki alveg sömu skoðun og hv. þingmaður á þessu máli svona heilt yfir. Það er hins vegar margt í hans máli sem er mjög athyglisvert og ég get svo sannarlega tekið undir og þar á meðal það, eins og hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu, þá er það nú í stjórnarsáttmála þessarar ríkisstjórnar að skoða þessi mál öllsömul þannig að ég held að við eigum ekkert að skorast undan þeirri ábyrgð.

Virðulegur forseti. Það var talað um umsagnir og umsagnaraðila, að flestar þær tillögur og umsagnir sem um frumvarpið hefði borist hefðu verið jákvæðar, þar á meðal umsögn Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Mig langar að lesa hana upp, með leyfi forseta:

„Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar fagnar öllum málefnalegum og góðum tillögum til að bæta og efla íslenska stjórnskipan. Þegar lagðar eru fram tillögur um jöfnun atkvæðavægis er jafnframt nauðsynlegt að líta til mögulegra breytinga á kjördæmaskipan landsins, samskipta kjósenda við þingmenn og þess að tryggja að sjónarmiða sem flestra byggða landsins gæti hjá kjörnum fulltrúum á Alþingi. Byggðarráð leggur ríka áherslu á að samhliða slíkum tillögum verði lagðar fram og ræddar tillögur um aukna valddreifingu og tilfærslu stjórnsýslu, ráðuneyta og stofnana frá einum miðlægum punkti á suðvesturhorninu til byggðarlaga vítt og breytt um landið.

Þessi afgreiðsla byggðarráðs tilkynnist hér með.“

Svo hljóðar umsögn byggðarráðs sveitarfélagsins sem er túlkuð sem jákvæð í þessari umsögn og mig langaði einfaldlega bara að lesa hana upp vegna þess að þar er verið að tala um kannski aðeins aðra nálgun og öðruvísi í einhverjum mæli heldur en frumvarpið gengur út á.