kosningalög.
Forseti. Ég er einn af meðflutningsmönnum þessa frumvarps. Á 151. löggjafarþingi lagði ég og þingflokkur Pírata fram sambærilegt mál, það var aðeins öðruvísi útfærsla. Það kvað á um það að öll kjördæmi væru með sex þingsæti og hversu mörg jöfnunarsæti væru þá í öllum hinum kjördæmunum. En við sameinuðumst um að leggja fram þetta frumvarp sem er hér til umræðu þar sem útfærslan var aðeins betri lagfæring á núgildandi lögum, til viðbótar við þessa jöfnun á fjölda þingsæta og fjölgun jöfnunarsæta í hverju kjördæmi.
Mig langaði til að bæta aðeins við umræðuna hérna, efnið hefur vel komið fram í máli flutningsmanns. Það er ekki hægt að ná alveg fullri jöfnun milli flokka miðað við núverandi stjórnarskrá. Þetta er sú leið sem kemst næst því. Mig langar til að vekja aðeins athygli á því hver munurinn er í raun og veru og þá sérstaklega út af 5% reglunni sem er í stjórnarskrá, þ.e. að flokkar sem ná ekki fimm af hundraði atkvæða á landsvísu geta ekki fengið jöfnunarmenn. Það eru þessi jöfnunarsæti, sem þetta snýst um hérna, þau fara úr því að vera níu í 27. Það er einn smá galli í þessu sem er einmitt tengdur þessari 5% reglu, sem þetta frumvarp gerir í rauninni verri — það er rosalega fjarlægur möguleiki, en mér finnst það mjög skemmtilegur möguleiki: Ef það væru 21 flokkur í framboði og allir fengju minna en 5% í kosningum þá fengi enginn þingflokkur jöfnunarsæti. Í núgildandi lögum eru 54 þingmenn en ef þetta gilti þá væru bara 36 þingmenn. Kannski myndu sumir fagna því, ég veit ekki, það er eins og gengur og gerist. En þetta er klárlega galli á kosningalöggjöfinni og hann kemur frá þessum 5% þröskuldi sem var settur í stjórnarskrá seint á síðustu öld, að mig minnir.
Svo að ég fari aðeins í greinargerðina með frumvarpinu sem ég lagði fram á 151. þingi þá kemur þar fram, með leyfi forseta, þetta er dálítið löng tilvitnun sem ég ætla að lesa:
„Í undanförnum kosningum hefur munað talsverðu á milli hlutfallslegs fjölda atkvæða og skiptingar þingsæta á milli þingflokka. Ef ekki er gert ráð fyrir 5% þröskuldinum í stjórnarskrá hefðu t.d. fimm framboð í kosningum til Alþingis árið 2013 fengið eitt til tvö þingsæti hvert. Áhrifin af því leiða svo til þess að þau þingsæti dreifast yfir á aðra flokka umfram hlutfallslegt atkvæðavægi. Þá fékk Sjálfstæðisflokkurinn tvö aukaþingsæti, Framsóknarflokkurinn fjögur, Samfylkingin eitt og Björt framtíð eitt.“
Ef tekið er tillit til 5% reglunnar hins vegar, eins og var farið yfir hérna í framsögu á þessu máli, en á landsvísu, ekki skipt niður á kjördæmi eins og er gert heldur tekið á landsvísu, það er smámunur í þessum tölum hjá mér og þeim sem voru í framsögunni, þá fékk Framsóknarflokkurinn árið 2013 tvö aukaþingsæti á kostnað Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og Píratar hefðu átt að fá eitt jöfnunarsæti, þ.e. VG og Píratar hefðu fengið eitt aukasæti hvor flokkur og Framsóknarflokkurinn hefði misst tvö. Þetta er á landsvísu.
„Í kosningunum 2016, ef ekki er tekið tillit til 5% þröskuldsins, þá fékk Sjálfstæðisflokkurinn fimm aukaþingsæti, Vinstrihreyfingin – grænt framboð tvö aukaþingsæti, Píratar tvö og Viðreisn eitt auka. Samfylkinguna vantaði eitt þingsæti, Bjarta framtíð tvö, Dögun tvö, Flokk fólksins þrjú og Alþýðufylkinguna eitt.“
Ef tekið er hins vegar tillit til 5% þröskuldsins þá eru Flokkur fólksins, Alþýðufylkingin, Dögun og Björt framtíð ekki með. Þá dreifast þau þingsæti öðruvísi. En þrátt fyrir það, á landsvísu, ef farið er eftir því, þá væri Sjálfstæðisflokkurinn að fá fjögur aukaþingsæti á kostnað Framsóknarflokksins, eitt þar, eitt á kostnað Samfylkingarinnar og tvö á kostnað Bjartrar framtíðar, tvö.
„Úthlutun þingsæta í kosningunum 2017 var nær því að vera rétt miðað við atkvæðahlutfall stjórnmálasamtaka. Ef ekki er tekið tillit til 5% þröskuldsins munaði einungis einu sæti sem Framsóknarflokkurinn fékk á kostnað Bjartrar framtíðar. Ef tekið er tillit til þröskuldsins í stjórnarskrá fékk Framsóknarflokkurinn einnig eitt aukaþingsæti en þá á kostnað Samfylkingarinnar.“
Það er þá sama tala og er fjallað um í framsögu þessa máls, það munaði engu þar hvort sem var á landsvísu eða af því að það voru svo fáir.
„Skekkjan af því að hafa fá jöfnunarsæti í undanförnum þrennum kosningum er þónokkur.“ — Þetta er lagt fram fyrir kosningarnar 2020 þannig að upplýsingar úr þeim eru ekki þarna. — „Í kosningunum 2013 munaði tveimur þingsætum. Það hefði þýtt ríkisstjórn með 34 þingsæta meiri hluta en ekki 36 þingsæta. Það hefði ekki verið hægt að mynda meirihlutaríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar af því að þeir flokkar hefðu bara haft 30 þingmenn samtals og núverandi ríkisstjórn sem var mynduð 2017 væri nú einungis með 32 þingsæti …“
Eins manns meiri hluti á síðasta kjörtímabili ef það hefði verið tekið tillit til fullkominnar skiptingar yfir allt landið eftir atkvæðahlutfalli flokka. Ég er ekki viss um að ríkisstjórnin á síðasta kjörtímabili hefði orðið til ef hún hefði bara haft einn þingmann í meiri hluta. Alveg á sama hátt og árið 2016, 2017, kjörtímabilið þá, þar sem ríkisstjórnarflokkarnir höfðu í rauninni ekki meiri hluta atkvæða, það hefði ekki verið hægt að mynda þá ríkisstjórn eins og kom fram í framsögunni. Það hefði líklega ekki verið mynduð ríkisstjórn með 32 þingmönnum árið 2017 heldur.
Mér finnst þetta mjög áhugavert þegar allt kemur til alls. Maður hefur heyrt, þegar talað er við aðila sem eru gamalreyndir, hafa verið í kjörbréfanefnd og svoleiðis, og það hefur borist í tal þau skipti þar sem var verið að breyta þessu einhvern veginn í kosningalögum, þá lýsir fólk því að þegar það kom með einhverjar tillögur eða einhverjar útfærslur á því hvernig þetta gæti verið, þá komu þingmenn í röðum til stærðfræðinganna og spurðu: Hefði ég verið kosinn á Alþingi ef þessar breytingar væru við lýði eða ekki? Fólk hafði í alvörunni meiri áhyggjur af sínu sæti heldur en sanngirni kosningakerfisins. Ég get ekki skilið það öðruvísi en svo að hver ríkisstjórn sem situr í skjóli þessa kosningakerfis, jafnvel þó að þingsætin væru færri og meiri hlutinn til staðar — ég skil ekki hvernig ríkisstjórnin getur setið án þess að laga þetta, alla vega fyrir næstu kosningar. Ég hvet alla í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til að rúlla þessu máli í gegn og við klárum þetta þannig að þetta verði lagað fyrir næstu kosningar.