154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

kosningalög.

6. mál
[17:47]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Já, ég meina, lögin voru svoleiðis og það var kosið eftir þessum reglum og þetta var niðurstaðan. Það er ekkert annað hægt að segja en að viðkomandi stjórn hafi verið með löglegt umboð vissulega, þó að manni finnist það ekkert rosalega sanngjarnt umboð þegar allt kemur til alls, það eru ekkert öll lög sanngjörn, því miður. Ef við værum með aðeins meiri sanngirnisgleraugu á ýmsum lagasetningum þá held ég að ýmislegt væri öðruvísi og það er alveg merkilegt hvernig það getur orðið til. Stundum eru bara sögulegar skýringar á því sem fólk áttar sig ekki á fyrr en seinna þegar það koma einhverjar hliðarverkanir o.s.frv. T.d. í fyrirkomulaginu eins og við erum að ræða núna þá koma þessir gallar kosningakerfisins í rauninni ekki í ljós fyrr en flokkum fjölgar. Það er gallinn í kosningakerfinu. Eins og það var búið til áður, með þessum fjórum eða fimm flokkum, þá raðaðist þetta innan þeirra skekkjumarka og enginn þurfti að hafa neinar sérstakar áhyggjur af því. En um leið og flokkum fjölgaði þá brotnaði kerfið — innbyggður galli í kerfinu sem fólk skoðaði ekki, hafði ekki hugmyndaflug í að ímynda sér að það yrðu svona margir flokkar í framboði og að svona margir flokkar myndu ná svona miklum árangri. Þess vegna bendi ég einmitt á það að ef það eru 21 eða fleiri flokkar í framboði sem allir myndu ná minna en 5%, enginn myndi ná yfir 5% — það er fræðilegur möguleiki, ég er ekki að segja að það sé raunverulegur möguleiki — þá gjörsamlega hrynur þetta kosningakerfi. Við þurfum í alvörunni að hugsa aðeins svoleiðis. Þetta er svona gæðastjórnunarhugsun í því, hvað ef þetta gerist, og verum með öll jaðartilfellin á hreinu. Ég hef allavega mjög gaman af svoleiðis umræðum.