154. löggjafarþing — 10. fundur,  28. sept. 2023.

kosningalög.

6. mál
[17:49]
Horfa

Flm. (Sigmar Guðmundsson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir. Já, það er vissulega galli á kerfi ef það getur hrunið við möguleg kosningaúrslit þó að þau séu kannski ekkert sérstaklega líkleg.

En mig langaði að spyrja hv. þingmann líka um annað. Ef það er eitthvað viðkvæmt í íslenskri pólitík þá er það auðvitað það hvernig við gætum að hinum dreifðari byggðum landsins. Þetta er oft alveg svakalega erfið umræða á Íslandi, hún er tilfinningahlaðin. Það er auðvitað þannig að mörg byggðarlög hafa verið að horfa upp á fólksflótta lengi og hafa ekki náð sér almennilega á strik á síðustu áratugum. Menn hafa nefnt þar auðvitað ýmsa hluti til sögunnar sem ég ætla ekki að rekja hér en a.m.k. er þetta auðvitað tilfinningalegt sjónarmið og raunverulegt sjónarmið sem við þurfum að taka tillit til þegar við erum að jafna aðstöðumuninn í kosningum á milli kjósenda eftir því hvar þeir búa. Mig langaði að spyrja hv. þingmann um það hvort honum finnist ekki vel hægt að ná fram einhverjum almennum sjónarmiðum um öflugri byggðir úti á landi án þess að það þurfi að ganga svona langt í því að skerða mannréttindi fólks á höfuðborgarsvæðinu umfram það sem gengur og gerist úti á landi. Getum við ekki vel tryggt jafnara vægi atkvæða á landsvísu á milli kjördæma og jafnframt haldið í heiðri kröfunni um það að við viljum hafa öfluga búsetu um landið allt? Þurfum við að tryggja búsetu um landið allt með svona róttæku inngripi inn í mannréttindi eins og við erum að gera núna í kosningalögum?