þróunaráætlun og tilraunaverkefni fyrir ræktun lyfjahamps og notkun kannabislyfja í lækningaskyni.
Forseti. Ég hef verið meðflutningsmaður á þessu máli áður og styð það heils hugar enn þá. Meðflutningsmaður eða ekki, það skiptir svo sem ekki máli. Hv. þm. Halldóra Mogensen náði að vera meðflutningsmaður núna þannig að ég sleppti því núna, það er nóg að einn úr þingflokknum sé meðflutningsmaður. Ég kem bara og lýsi yfir stuðningi mínum við þessa þingsályktunartillögu. Það er ýmislegt sem má skoða og athuga sérstaklega. Það er þessi kvöl í rauninni, eins og hv. þingmaður kom inn á, fólks sem er vissulega að nýta sér þessi efni, ekki endilega til lækninga heldur til þess að stilla verki a.m.k. Það er alveg ómögulegt, af því að það virkar, að viðkomandi þurfi að vera lögbrjótur til að fá þessa lausn frá þjáningum. Ég held að við ættum að taka það svona aðeins nær okkur hvað það þýðir í stærra samhenginu og drífa okkur í því að gera betur hvað þessi efni varðar. En hvað varðar svona gróðahlutann í þessari þingsályktunartillögu þá er það kannski þaðan sem Sjálfstæðisflokkurinn kemur í þessu, þarna er gróðavon, tvímælalaust, og ekkert smáræði. Ég bara fagna því frumkvæði að hlaupa á eftir peningunum í þessu því þegar allt kemur til alls þá er markmiðið gott.