lagning heilsársvegar í Árneshrepp.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um lagningu heilsársvegar norður í Árneshrepp. Flutningsmenn eru auk þess sem hér stendur Steinunn Þóra Árnadóttir, Teitur Björn Einarsson, Eyjólfur Ármannsson og Bergþór Ólason. Með þessari tillögu er fylgt eftir ályktunum Alþingis um aðgerðir til að standa vörð um byggð í Árneshreppi á Ströndum. Tillagan er endurflutt og var fyrst lögð fram á 140. og 141. löggjafarþingi. Greinargerð með tillögunni hefur verið uppfærð með tilliti til byggða- og atvinnuþróunar síðustu 11 ára, breytingar á samgönguáætlun og mikilvægra byggðaverkefna svo sem Brothættra byggða sem hafa haft jákvæð áhrif í Árneshreppi frá árinu 2014.
Jón Bjarnason var fyrsti flutningsmaður tillögunnar áður. Hann hafði um langt skeið beitt sér fyrir uppbyggingu og eflingu Árneshrepps. Í flutningsræðu með tillögunni á 141. löggjafarþingi lagði hann höfuðáherslu á að vegurinn fengist viðurkenndur á vegáætlun sem heilsársvegur og kæmi til framkvæmda í sýnilegri náinni framtíð og undirstrikaði að íbúar í Árneshreppi á Ströndum verðskuldi að Alþingi standi við þau fyrirheit sem hafa ítrekað verið gefin um að standa við bakið á byggðarlaginu. Þau áform sem vísað er til eru rakin í greinargerð tillögunnar en ég mun stikla á stóru hvað þau varðar.
Árið 2003 samþykkti Alþingi samhljóða svohljóðandi þingsályktun um aðgerðir til verndunar búsetu og menningarlandslags í Árneshreppi en fyrsti flutningsmaður þeirrar tillögu var Einar K. Guðfinnsson. Í nefndaráliti umhverfisnefndar var samþykkt tillögunnar rökstudd á eftirfarandi hátt:
„Nefndin telur að stuðla eigi að verndun þess menningararfs sem felst í búsetu og búsetuminjum í jaðarbyggðum Íslands. Við umfjöllun málsins var bent á að jaðarbyggðir landsins endurspegli mjög vel tengsl þjóðarinnar við landið í aldanna rás og með hvaða hætti þjóðin nýtti sér gæði þess til lífsviðurværis. Því væru þær afar mikilvægur þáttur í menningarsögu þjóðarinnar. Árneshreppur á Ströndum er á margan hátt einstök jaðarbyggð, landfræðilega afmarkaður, nokkuð þéttbýll, auk þess sem þar er að finna fjölbreyttar minjar um búsetu, atvinnuhætti og sögu þjóðarinnar.“
Í framhaldi af samþykkt tillögunnar var veitt nokkurt fé til stuðnings uppbyggingu ferðaþjónustu, viðgerð húsa og uppbyggingu safna í hreppnum. Jafnframt var unnið að því að vegurinn norður í Árneshrepp færi inn á samgönguáætlun. Unnið var að uppbyggingu vegarins frá Bjarnarfirði og norður Bala sem var mikil samgöngubót. Að öðru leyti hefur áætlunin ekki gengið eftir sem skyldi og áframhaldandi vegbótum ítrekað slegið á frest. Á 140. löggjafarþingi lögðu svo Ásmundur Einar Daðason og fleiri fram þingsályktunartillögu um snjómokstur í Árneshreppi, 607. mál, þar sem lagt var til að tryggt yrði að Vegagerðin annaðist eða greiddi fyrir nauðsynlegan snjómokstur á vegi 643, Strandavegi, tvo daga í viku. Í rökstuðningi fyrir þeirri tillögu er vikið að neikvæðum áhrifum færðar á daglegt líf íbúa svæðisins sem gerir þeim erfitt fyrir að sækja sér grunnþjónustu á veturna, auk áhrifa á uppbyggingu ferðaþjónustu.
Samkvæmt tillögunni sem lögð var fram á 141. löggjafarþingi, 191. mál, var talað um að 10.000 manns hafi heimsótt svæðið árlega yfir sumartímann. Ætla má að sá fjöldi hafi margfaldast en ferðamenn á landsvísu voru um 673.000 árið 2012, þegar tillagan var lögð fram. Í ágúst síðastliðnum var fjöldi ferðamanna kominn yfir tvær milljónir samkvæmt gögnum frá Ferðamálastofu. Í því tilliti má ætla að álag á vegakerfið í Árneshreppi hafi aukist svo um munar eins og víðast hvar á landinu. Í því tilliti má ætla að það þurfi að bregðast við. Á sumrin hefur þar verið starfrækt blómleg ferðaþjónusta, enda svæðið vinsælt meðal ferðalanga sem eru á leið til Hornstranda. Þá hefur tilkoma strandveiða hleypt nýju lífi í höfnina í Norðurfirði. Fjöldi þingmanna hefur haldið á lofti merkjum svæðisins í ræðu og riti. Þá hafa ýmis samtök, svo sem Vestfjarðastofa og Fjórðungssamband Vestfjarða, haldið uppi kröfu um uppbyggingu vegar norður um Árneshrepp og að vegþjónusta verði aukin, auk sveitarfélagsins sjálfs.
Byggðaþróunarverkefni Byggðastofnunar, Brothættar byggðir, hefur verið starfrækt á sjöunda ár í Árneshreppi undir nafninu Áfram Árneshreppur. Meðal þess sem hefur komið til framkvæmda á tímanum er lagning þriggja fasa rafmagns og ljósleiðara í hreppnum. Þá hefur verið gerð bragarbót á vetrarþjónustu Vegagerðarinnar síðastliðna tvo vetur svo að mögulegt hefur verið að aka þangað að vetrarlagi.
Í drögum að samgönguáætlun sem birtust í samráðsgátt stjórnvalda í sumar hefur vegbótum um Veiðileysuháls sem áttu að koma til framkvæmda árið 2024 verið frestað til ársins 2029. Slíkar vanefndir gefinna fyrirheita kæmu mjög illa við viðkvæma byggð í Árneshreppi og eru til þess fallnar að grafa undan þeim jákvæða ávinningi og bjartsýni sem vel heppnað verkefni Brothættra byggða hefur skapað.
Það er mikilvægt fyrir áframhaldandi búsetu á svæðinu og uppbyggingu innviða og atvinnu sem hefur átt sér stað síðastliðinn áratug að tryggja samgöngur í Árneshreppi.
Með samþykkt þessarar tillögu og tímasettri eftirfylgni og verkáætlun er Alþingi að standa við löngu gefin fyrirheit um að leggja heilsársveg um byggðina til og frá Árneshreppi í Norðurfjörð á Ströndum.