154. löggjafarþing — 11. fundur,  9. okt. 2023.

varamenn taka þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Berglind Ósk Guðmundsdóttir geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur um að hún verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum.

Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðaust., Berglind Harpa Svavarsdóttir, og 2. varamaður á lista Pírata í Suðvest., Indriði Ingi Stefánsson, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.

Þau hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.