um fundarstjórn.
Forseti. Eftirlitshlutverk þingsins er mjög mikilvægt og sérstaklega mikilvægt í þingræði eins og það er stundað hérna. Við eigum nú einu sinni að hafa eftirlit með störfum framkvæmdarvaldsins. En þegar meiri hlutinn á þingi er með svona hliðvörslu á eftirliti minni hlutans þá hljótum við að þurfa að spyrja okkur dálítið stórra spurninga um það hversu virkt þetta eftirlit með framkvæmdarvaldinu er í raun og veru. Það er mjög skýrt af forsetaúrskurði um það að forsætisráðherra hefur hlutverki að gegna í þessu máli. Þegar okkur er neitað um að fá forsætisráðherra á opinn fund þá hlýtur það að vera mjög alvarlegt og þess vegna spyr ég forseta hérna í fundarstjórn forseta, af því að þetta varðar það hvernig þingið starfar, hvort þetta sé tækt.