154. löggjafarþing — 11. fundur,  9. okt. 2023.

Boðun forsætisráðherra á opinn fund um réttindi flóttafólks.

[15:09]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Það er náttúrlega orðin dálítið alvarleg staða að þegar þingið og stjórnarandstaðan eru að reyna að sinna sínu hlutverki sem eftirlitsaðili sé orðið svona erfitt að biðja um gesti til nefnda. Það eru alls konar ástæður spunnar upp til að koma í veg fyrir það. Ég finn fyrir því ítrekað, meira og meira. Mér finnst þetta vera að ágerast. Ég bað um opinn fund í allsherjar- og menntamálanefnd um svipað mál, þ.e. útlendingalögin og framkvæmd þeirra. Þar kom mjög skýrt fram að það mætti ekki bjóða félagsmálaráðherra. Ég mátti bjóða dómsmálaráðherra en ekki félagsmálaráðherra af því að þetta heyrir ekki undir hann. Það má ekki bjóða forsætisráðherra að koma inn í velferðarnefnd af því að þetta heyrir ekki undir forsætisráðherra. Málið er að þetta snýr að því að það voru sett hér lög og ráðherrar mismunandi flokka, þ.e. félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra, tala þvers og kruss opinberlega um sína túlkun á þessum lögum og hvernig beri að framkvæma þessi lög. Það er náttúrlega ekki líðandi fyrir okkur (Forseti hringir.) að þessi orðræða fari fram á opinberum vettvangi en þegar eftirlitsaðilinn, þegar þingið og stjórnarandstaðan vilja fá þessa aðila á fund (Forseti hringir.) til að spyrja þá út í þessa mismunandi túlkun á lögunum og framkvæmdina þá einhvern veginn er það bara ekki hægt. Það er ekki boðlegt. Við verðum að laga þetta.