154. löggjafarþing — 11. fundur,  9. okt. 2023.

aðgerðir stjórnvalda gegn verðbólgu.

[15:19]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Hv. þingmaður sagði hér í fyrri fyrirspurn sinni að nú þyrfti að velja á milli þess að hafa hærri vexti eða hærri skatta, en ég held að það sé ekki alveg svo einfalt. Ég held að við þurfum að horfa á heildarmyndina og það er nákvæmlega það sem við erum að gera, bæði að sýna aðhald og grípa til félagslegra aðgerða til að styðja við Seðlabankann og það eru vísbendingar um að þessar aðgerðir séu nú að ganga eftir.

Hv. þingmaður spyr hér um kjarasamninga fram undan. Fyrstu skrefin til að styðja við kjarasamningana fram undan voru tekin með því að sýna áform ríkisstjórnarinnar um að tvöfalda framlög til þess að auka hér framboð á hagkvæmu húsnæði fyrir tekjulægri hópa, svokölluð stofnframlög. Þetta er eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda nú, þ.e. að koma jafnvægi á húsnæðismarkaðinn. Þetta er það sem verkalýðshreyfingin leggur mesta áherslu á, að við beitum okkar tólum og tækjum til að tryggja aukið framboð á húsnæðismarkaði, að við styðjum betur við bæði eigendur og leigjendur eins og við höfum verið að gera og að við hugum sérstaklega að kjörum barnafjölskyldna í landinu. (Forseti hringir.) Þar þurfa sveitarfélögin auðvitað líka að koma að, því að eitt stærsta vandamálið sem blasir við núna er auðvitað skortur á leikskólarýmum víða um land.