skoðun þess að taka upp nýjan gjaldmiðil.
Virðulegi forseti. Ég átta mig ekki alveg á svarinu. Spurningin var einföld: Er hæstv. forsætisráðherra tilbúinn til þess að taka boltann þar sem Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins gaf hann? Er hæstv. ráðherra tilbúinn, m.a. út af hagsmunatengslum við íslenskt samfélag, að reyna svolítið að slíta á þau tengsl, taka þann bolta og láta erlenda sérfræðinga skoða kosti og galla þessa? Eða er hæstv. forsætisráðherra að bíða eftir grænu ljósi frá Samtökum atvinnulífsins? Eftir hverju er forsætisráðherra að bíða hvað þetta svar varðar? Ég óska eftir því að hæstv. forsætisráðherra svari þessu.
Ég er hins vegar alveg sammála hæstv. forsætisráðherra um að við þurfum að skoða þetta heildstætt. Við þurfum að skoða heildarmyndina. Það er nákvæmlega það sem við í Viðreisn höfum lagt áherslu á, að taka einmitt næsta skref, að þora að taka næsta skref við að skoða myndina. Annað er uppgjöf stjórnmálanna; að segja að það sé ekki tími núna, að þetta sé erfitt og þetta sé snúið. Við þekkjum öll þessa ræðu. Við þurfum að fara lengra. Ég vil minna á að Vinstri græn hafa ályktað um það einu sinni að treysta þjóðinni fyrir því að taka næsta skref. Við skulum fara þangað því að það er lykillinn að því að skoða heildarmyndina (Forseti hringir.) og skoða öll þessi mál heildstætt í þágu þjóðarinnar.