afstaða forsætisráðherra til árásar á Ísrael.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Svarið er algerlega skýrt. Utanríkisráðherra Íslands lýsti afstöðu íslenskra stjórnvalda sem er líka afstaða hæstv. forsætisráðherra. Íslensk stjórnvöld fordæma þessa árás og gera það með skýrum hætti og afdráttarlaust. Hv. þingmaður spyr hér — eða biður mig að ræða ekki um stöðuna almennt, en ég ætla samt að fá að nota tækifærið og gera það því að það er einfalt svar við fyrirspurn hv. þingmanns. Afstaða íslenskra stjórnvalda liggur algjörlega ljós fyrir. En það er hins vegar mjög mikið áhyggjuefni að sjá þessar árásir því að það er alveg ljóst að afleiðingarnar af þeim geta orðið gríðarlegar og haft áhrif langt út fyrir þetta svæði. Við erum að sjá átökum í heiminum fjölga, víða um heim, og heimurinn er í raun og veru orðinn allur annar staður en hann var bara fyrir örfáum árum. Ég vil segja það, þó að hv. þingmaður vilji ekki að ég tali um það, að það er líka áhyggjuefni fyrir okkur Íslendinga að sjá þessa uggvænlegu þróun víða um heim. En afstaða íslenskra stjórnvalda gagnvart þessari árás er algerlega skýr og hún er fordæmd.