154. löggjafarþing — 11. fundur,  9. okt. 2023.

rannsóknarskýrsla um heimilin vegna bankahrunsins.

[15:39]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég tek hvorki undir myndlíkinguna né þá mynd sem dregin var upp í þessari fyrirspurn hv. þingmanns og er hreinlega ekki sammála henni. Hv. þingmaður er hins vegar að spyrja mig hér um rannsóknarskýrslu Alþingis og það er auðvitað ekki mitt að taka ein ákvörðun um slíkt. Það er bara ákvörðun sem Alþingi tekur. Ég get hins vegar lýst þeirri skoðun minni sem þingmaður, eins og hv. þingmaður, og við erum jú öll með eitt atkvæði í þessum sal ef slík tillaga kæmi til afgreiðslu, að ég tel og ítreka það að Alþingi Íslendinga hafi staðið sig vel í því að gera upp hrunið. Ég tel að rannsóknarskýrsla Alþingis hafi birt mjög greinargóða mynd af aðdraganda hrunsins og ég tel að stjórnkerfið og þingið hafi staðið sig vel í því að vinna úr þeim ábendingum sem þar komu fram.