ákvörðun um fordæmingu innrása.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið þó að mér sé enn þá svolítið óljóst hvernig, í hvaða tilvikum og á hvaða forsendum ákvörðun er tekin um að fordæma ákveðna hluti ekki. Nú hefur varnarmálaráðherra Ísraels lýst því yfir að hernaðaraðgerðum Hamas, árásum og ofbeldi verði svarað með fordæmalausri árás á Gaza-svæðið, ekki eingöngu með varnaraðgerðum heldur árás.
Í fyrsta lagi: Telur hæstv. ráðherra ástæðu til að fordæma opinberlega yfirlýsingar varnarmálaráðherra Ísraels um að þau muni fremja enn frekari stríðsglæpi í kjölfar þessara árása, m.a. með því að drepa almenna borgara Gaza-strandarinnar og jafna heimili við jörðu til að hefna fyrir þessa árás Hamas? Þess má geta að hefnd er ekki lögleg í þjóðarétti.
Í öðru lagi: Hyggst hæstv. ráðherra fordæma lokanir Ísraels á mat, vatni, rafmagni, interneti og eldsneyti inn á Gaza-svæðið?