154. löggjafarþing — 11. fundur,  9. okt. 2023.

Ráðstöfun söluágóða af ríkiseignum til fjárfestinga í mikilvægum innviðum.

[16:34]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Það er ekkert launungarmál að það þarf að vera traust á kerfinu til þess að við getum skoðað það að halda áfram með varfærnum og skynsamlegum hætti að selja eignir ríkisins sem ekki eru hluti af innviðakerfi landsins. Einnig þarf að gæta að því að sala ríkiseigna sé ekki háð geðþóttaákvörðunum. Þegar stærri mál koma upp eða eru á teikniborðinu er brýnt að slíkt fari fyrir ríkisstjórn og þingið þar sem það er rætt til hins ýtrasta, öllum mögulegum vanköntum velt upp og farsæl lausn fundin sem breið sátt er um. Við þurfum að meta hverju sinni hvaða hagsmunir eru undir varðandi sölu á ríkiseignum og hvernig við hyggjumst ráðstafa þeim fjármunum sem úr þeirri sölu koma. Ríkið á eignir sem eflaust er hægt að selja en aðrar sem við í Framsókn munum aldrei sætta okkur við að verði seldar. Hvað okkur í Framsókn varðar kemur t.d. ekki til greina að selja eignir á borð við Landsvirkjun. Að ýmsu í sölum undanfarinna ára hefur verið vel staðið en annað kom einnig til sem þurfti greinilega að vinna betur. Það er mikilvægt að ræða þessi mál og að ágóði af sölu ríkiseigna renni til innviðauppbyggingar á borð við samgöngur. En rauði þráðurinn í þessu öllu saman er þó að mikilvægir innviðir í eigu ríkisins eru ekki til sölu og verða það ekki á vakt Framsóknar.