Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Forseti. Ég minnist á það aftur að ég er fyrrum starfsmaður Menntamálastofnunar en miðað við hvernig lögin eru þá er ég ekki hagsmunatengdur þeirri stofnun af því að það eru fimm ár sem mega líða og þá hefði ég rétt á sömu stöðu aftur og ég var í ef ég myndi hætta sem þingmaður og fara aftur þangað. Það á ekki við lengur þannig að ég tala hérna sem frjáls maður hvað það varðar — bara til að hafa það alveg á hreinu. (Gripið fram í.) Nei, nei, ég átta mig á því en ég vildi bara gera grein fyrir þessu atriði af því að það eru ótrúlegustu hlutir sem fólk gerir athugasemdir við varðandi vanhæfi og þess háttar — stundum rétt og stundum ekki og stundum er gagnrýni á það rétt og stundum ekki, eins og það er.
Sitjandi í fjárlaganefnd og sem fyrrum starfsmaður og áhugamaður um menntamál eru tvö atriði helst sem ég myndi vilja gera athugasemdir við. Fyrst er ég sammála ráðherra, og þetta er gömul saga og ný, um að það vantar eftirfylgni með framkvæmd aðalnámskrár og innleiðingu aðalnámskrár. Þegar nýja aðalnámskráin, sem er ekkert voðalega ný lengur, var samþykkt snerist hún í rauninni um það að færa faglega skólastarfið og faglegu kennslufræðina til skólanna, að það væri á þeirra forræði að útfæra markmið og hæfniviðmið aðalnámskrár. Það gat orðið mismunandi í hverjum skóla fyrir sig. Það var mjög mikilvægt til þess að passa upp á faglega, óháða stjórnun. Þetta er í rauninni akademíska frelsið sem er hluti af lýðræðissamfélaginu eins og það leggur sig. Þetta gekk ekki, bara til að segja það í fáum orðum, það einfaldlega gekk ekki. Skólarnir héldu að sér höndum og báðu rosalega mikið um leiðbeiningu um það hvernig hver skóli fyrir sig ætti að innleiða og ná þessum markmiðum sem voru sett fram í aðalnámskrá. Það var í rauninni ekki aðgengileg aðstoð til að hjálpa skólunum að ná markmiðum aðalnámskrár. Þannig að ég skil vel þann hluta þessa frumvarps sem er kannski ætlaður til að styðja skóla í að ná markmiðum aðalnámskrár. Það er framkvæmd sem getur orðið áhugaverð af því að það er líka talað um sem ákveðna miðstöð menningar og skólaþjónustu. Það er stutt í að það sé miðstýring, þó að það sé ekki endilega alveg nefnt, en þá glatast í rauninni sá fjölbreytileiki sem er í aðalnámskránni; að hver skóli geti innleitt kennsluaðferðir og kennslufræði til að ná markmiðum á mismunandi hátt sem við síðan berum saman og lærum og verðum betri. Ef samhæfingin er á þann hátt að það fara allir að gera hlutina eins aftur er það slæmt. Þannig að ég legg það fram í umræðunni að við pössum upp á þann fjölbreytileika sem er nauðsynlegur, ekki bara fyrir mismunandi skóla heldur nemendur innan skóla.
Hitt sem mig langar að vekja athygli á hérna er þetta klassíska mat á áhrifum. (Gripið fram í.) Þess vegna sýni ég þetta hérna í myndavélarnar. Það má þysja inn eftir hentugleika. Í 1. gr. þessa frumvarps stendur, með leyfi forseta: Bestu þekkingu.
„Miðstöð menntunar og skólaþjónustu starfar í þágu barna og ungmenna á sviði fræðslu- og menntamála um land allt í samræmi við lög, stefnu stjórnvalda, bestu þekkingu og alþjóðleg viðmið.“
Nú er það bara einfaldlega þannig að það er ekki verið að starfa samkvæmt bestu þekkingu, það er ekkert flókið, og ástæðan fyrir því að ekki er verið að gera það er fjármagnsskortur. Það vantar pening til að geta unnið samkvæmt bestu þekkingu. Það er verið að reyna að velja bestu aðferðirnar sem við höfum efni á. Það er stóri munurinn þarna. Já, vissulega hefur þetta kannski ekki áhrif á fjárhagsstöðu ríkisins, því að velflest skólaþjónusta, bæði leikskóla- og grunnskólaþjónusta, er hjá sveitarfélögunum. Við höfum talað um það áður hversu mikið hið opinbera er að hlaða verkefnum á sveitarfélögin án þess að tala við þau. Ef þau eiga samkvæmt lögum að fara að vinna samkvæmt bestu þekkingu í þessum fræðum þá mun það kosta meiri pening. Annars eru þau ekki að uppfylla lögin og starfa samkvæmt bestu þekkingu. Svo koma náttúrlega framhaldsskólarnir og háskólarnir inn í þetta líka. Þar er heldur ekki verið að vinna samkvæmt bestu þekkingu. Þar er verið að vinna samkvæmt fjárheimildum, þeim takmörkuðu fjárheimildum í rauninni sem fara í þennan málaflokk sem gerir það að verkum að öll námskeið eru skipulögð til að passa inn í þann ramma, ekki til að ná sem bestum árangri eða mestum gæðum heldur eins miklum gæðum og hægt er fyrir þann pening sem til er. Ég ætla því bara að vekja einfaldlega athygli á því að það er ekki hægt að uppfylla þessa 1. gr. miðað við mat á áhrifum, sem kemur fram hérna, af því að fjárheimildirnar stýra í rauninni því hvaða gæðum er hægt að ná í gegnum skólakerfið.