154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

afsögn fjármála- og efnahagsráðherra.

[13:32]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Við urðum vitni að stórtíðindum í morgun þegar ráðherra sagði af sér og í rauninni ekkert annað fyrir hann að gera því að nú hefur komið í ljós að það voru ekki bara brotalamir í byrjun söluferlisins á Íslandsbanka, eins og haldið hefur verið fram af stjórnarliðum í upphafi, heldur hafa Ríkisendurskoðun, Fjármálaeftirlit og nú síðast umboðsmaður gagnrýnt ferlið harðlega, allt frá upphafi til enda. Það væri þess vegna ekki úr vegi, herra forseti, að við fengjum að heyra aðeins í stjórnarliðum núna, hvernig þau líta á þetta mál og hvernig þau sjá framhaldið og hvernig þetta blasir við þeim.