154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

afsögn fjármála- og efnahagsráðherra.

[13:47]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Það er áhugavert hvernig hægt er að hlaupast undan ábyrgð með því að segjast axla hana í smáskrefum. Einu sinni var talað um að fjármálaráðherra hefði axlað ábyrgð með því að biðja um skýrslu Ríkisendurskoðunar. Svo kom sú skýrsla til þingsins og leit ekki vel út fyrir ráðherrann. Þá var sagt að ráðherrann hefði axlað ábyrgð með því að leggja niður Bankasýsluna, sem er reyndar enn að störfum og hefur ekkert lært af skýrslunni eða reynslunni af sölu Íslandsbanka. Nú axlar ráðherra ábyrgð með því að stíga til hliðar og væntanlega reyna að koma öðrum Sjálfstæðismanni í fjármálaráðuneytið til að geta haldið verkinu áfram; sama verki, sömu handbók.

Forseti. Ábyrgðin er ekki sú hvort Bjarni Benediktsson sé fjármálaráðherra. Ábyrgðin er sú hvort Sjálfstæðisflokknum sé treystandi fyrir þessu ráðuneyti. Reynsla síðustu sex ára, eins og reyndar reynsla margra ára þar á undan, (Forseti hringir.) er sú að þessum flokki er ekki treystandi fyrir því að fara með stjórn fjármála ríkisins. (Forseti hringir.) Honum er alls ekki treystandi fyrir því að selja ríkiseignir af því að alltaf er einhver ættingi á kaupendalistanum, alltaf er eitthvert vanhæfi hjá þessum sérhagsmunaflokki Íslands. (Forseti hringir.) Ábyrgðin sem hefði átt að axla fyrir lifandis löngu er að Sjálfstæðisflokkurinn á ekki heima í Stjórnarráði Íslands.