Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Álit umboðsmanns Alþingis liggur fyrir og Bjarni Benediktsson hefur sagt af sér sem fjármála- og efnahagsráðherra. Ég tel að hann hafi þar brugðist rétt við og mér finnst eðlilegt að þingið hafi verið að ræða þetta hér áðan undir dagskrárliðnum fundarstjórn forseta.
Herra forseti. Það er samt þannig að það eru jafnvel stærri og alvarlegri atburðir að gerast úti í hinum stóra heimi, þó svo að auðvitað skipti þetta máli í íslensku samfélagi. Síðustu sólarhringa höfum við horft upp á hörmulega atburði fyrir botni Miðjarðarhafs, atburði keimlíka því sem við höfum því miður séð svo ótal oft áður í átökum Palestínufólks og Ísraelsmanna. Við höfum séð þetta handrit áður og vitum hvernig því mun ljúka, eða öllu heldur ekki ljúka.
Átakasaga þessi er áratugalöng en þessi lota hófst með hræðilegum árásum og hrinu mannrána og morða Hamas-liða. Hið fyrirsjáanlega viðbragð var svo loftárásir Ísraelshers á þéttbýlt svæði fólks sem getur hvergi flúið. Afleiðingin verður eins og allir vita í hjarta sínu aðeins framlenging á vítahring ofbeldis og gagnárása. Raunverulegur friður muni ekki komast á með ofbeldi, ekki í Palestínu og Ísrael og ekki neins staðar annars staðar.
Forseti. Ég trúi því að íslensk stjórnvöld geri sitt til að tala máli friðar þarna sem annars staðar og ég fagna því að það hafi verið gripið skjótt inn í og látið senda eftir Íslendingum og koma þeim af átakasvæðinu. Ég ætla að trúa því að það komi ekki annað til álita núna, eins og málum er háttað, að það detti ekki nokkrum manni í hug að senda einhvern héðan til átakasvæðisins í Palestínu.