154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

Störf þingsins.

[14:24]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Við stöndum víst á ákveðnum tímamótum. Ég myndi segja um þau tíðindi sem við höfum verið að ræða hér í þinginu í morgun, núna í fundarstjórn forseta og það sem af er störfum þingsins, að við stöndum á ákveðnum krossgötum. Við stöndum á sögulegum stjórnmálalegum krossgötum þar sem fjármálaráðherra hefur stigið fram — og ég segi það af virðingu. Honum var ekki hrint fyrir björgin, hann var ekki þvingaður í það og hann heyktist ekki við og hékk ekki á embættinu eins og hundur á roði, eins og við höfum oftar en ekki upplifað hér, heldur sagði hann af sér embætti. Mér finnst í rauninni að hann sé að sýna hér ákveðið fordæmi.

Með þá stjórnmálafræðimenntun sem ég hef finnst mér í rauninni mjög spennandi að hugsa: Hver er þessi leikur? Hvert er ríkisstjórnin að stefna? Hvert stefnir Sjálfstæðisflokkurinn? Og hefur Bjarni Benediktsson, hæstv. fjármálaráðherra, í rauninni komið með blaðamannafund hálfellefu í morgun og, að mér skilst, hér í þingsal hafi bara ekki nokkur einasti maður vitað af þessu? Bjarni er búinn að vita af þessu í dálítinn tíma og þetta er gert að vel ígrunduðu máli. Hann sýnir hér fordæmi sem ég held að verði ansi erfitt fyrir hæstv. matvælaráðherra að standast, ef álit umboðsmanns fellur í þá átt að hún hafi brotið stjórnsýslulög, meðalhóf og fleiri reglur stjórnsýslulaga þegar hún steig harkalega inn í hvalveiðarnar sem áttu að hefjast hér fyrr í sumar og lagði bann á þær daginn áður en skipin lögðu úr höfn. Og það er algjörlega burt séð frá því hvað okkur finnst um hvalveiðar eða ekki hvalveiðar.

Hér eru ákveðin tímamót, stjórnunarleg og stjórnmálafræðileg tímamót að verða sem mér finnst vert að ígrunda og skoða. Við erum hér að nálgast það sem við höfum meira séð í löndunum í kringum okkur þar sem ráðherrar axla ábyrgð og stíga til hliðar þegar þeim finnst ástæða til. (Forseti hringir.) Hæstv. ráðherra Bjarni Benediktsson sagði að völdum fylgdi ábyrgð og að hann væri að axla þá ábyrgð. Ég segi bara: Áfram veginn: Ég vona að þetta fordæmi sé nákvæmlega eins og ég les í það, að við eigum eftir að sjá þessa hluti gerast, algerlega skilyrðislaust (Forseti hringir.) þegar vitað er að ráðherrar hafi farið á svig við lög.