154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

Störf þingsins.

[14:50]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Mig langar til að nota þetta tækifæri til að ræða stöðuna í Palestínu og Ísrael og stöðuna í Miðausturlöndum. Skelfilegar árásir áttu sér stað um helgina: Fjöldamorð, gíslataka, mannrán, þúsundir liggja í valnum, bæði Palestínumenn og Ísraelar, og ekkert lát virðist á átökum og ef eitthvað er þá sýnist mér að þau muni versna.

Það kann aldrei góðri lukku að stýra þegar stjórnmálamenn sem aðhyllast öfgaskoðanir ráða ferðinni. Ég ætla að nýta þetta tækifæri til að lýsa þeirri skoðun minni að öfgastjórnin undir stjórn Benjamins Netanyahus sé með búin að færa Ísrael fram á barm glötunar, myndi ég vilja orðað það. Og það sama má segja um Hamas-liðana á Gaza, af því að þeir eru líka öfgamenn. Og um leið og við reynum að skilja stöðuna og reynum að sjá hvernig það er mögulegt að stilla til friðar þannig að réttlætinu sé fullnægt, lífum þyrmt og fólk fái í raun og sann að njóta þeirra mannréttinda sem við öll eigum að fá að njóta, þá held ég að við, bæði í utanríkisstefnu okkar og samfélög þjóða á Vesturlöndum, verðum að horfast í augu við það að við getum ekki með neinum hætti stutt við öfgamenn sem komist hafa til valda, hvort sem þeir heita Hamas-liðar eða Likud-liðar, eða hvað það nú er sem bandalagið heitir sem Benjamin Netanyahu leiðir, hvort tveggja ber í sér glötun og mun ekki þjóna sameiginlegum hagsmunum þess fólks sem byggir Ísrael og Palestínu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)