154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

framhald þingfundar samkvæmt dagskrá.

[15:31]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Virðulegi forseti. Ég velti því fyrir mér hvort það liggi fyrir að við ætlum bara að halda áfram með dagskrána. Hér liggja fyrir nokkuð mikilvæg mál eins og samgönguáætlun sem hlýtur að þurfa að ræða í nokkuð góðu tómi. Ég tel mjög vafasamt að fara að ætla að ræða samgönguáætlun þar sem við fjöllum um framtíðarsýn og framtíðarframkvæmdir í samgöngum til næstu ára þegar svo stendur á að hér er þingsalurinn næstum því tómur og mjög margir hv. þingmenn eru að ráða ráðum sínum. Ég myndi telja að það væri rétt að við fengjum hér tóm til að ræða mikilvæg mál eins og samgönguáætlun þegar þingmenn geta tekið þátt.