154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.

315. mál
[15:49]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka kærlega fyrir. Þetta er auðvitað alltaf mikilvægt plagg og risastórt. Ég geri mér grein fyrir að þetta er ekki einfalt verkefni í því efnahagslega umhverfi sem við erum í, þar sem við erum á þensluskeiði. Engu að síður staldrar maður nú aðeins við vegna þess að sögulega þá verjum við a.m.k. ekki meiru, í mesta lagi jafn miklu, og nágrannaþjóðir okkar sem hlutfall af vergri landsframleiðslu til samgöngumála og í samgöngusáttmála en þó eru mörg Evrópuríki búin að byggja upp sínar samgöngur og féð fer þá að mestu leyti í það að auka öryggi og uppfæra tæknimál og annað slíkt.

Ráðherra kom inn á að það væri eitt af forgangsmálunum og auðvitað mjög mikilvægt, ég geri ekki lítið úr því, en einnig leggur hann áherslu á að jafna búsetuskilyrði og ég kem aðeins að því í síðara andsvari.

Mig langar að spyrja ráðherra út frá þessum samanburði. Það er alveg ljóst að innviðaskuldin okkar vex ár frá ári og það er algjörlega óháð hver situr í ráðuneytinu núna og einhvern tímann þurfum við að fara að vinda ofan af henni. Það er auðvitað mjög margt jákvætt þarna. Mér finnst framfaraskref að taka jarðgöng út fyrir sviga og vera með sérstaka áætlun um það þannig að við verðum borandi hér stanslaust á næstu árum og áratugum þangað til það er búið.

Það er gríðarlega mikilvægt líka að standa við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins vegna þess að það er bara brýnt loftslagsmál. En af því að ráðherra talaði dálítið um að jafna búsetuskilyrði, finnst honum nóg að gert og er hann sammála mér um það að innviðaskuld en okkar er að vaxa?