154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.

315. mál
[15:51]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að á mörgum liðnum árum, eða í það minnsta frá efnahagshruninu, höfum við notað allt of lítið af fjármunum. Okkur tókst kannski í fjárfestingarátaki í Covid að ná þessu hlutfalli af landsframleiðslu upp svona á þolanlega stað. Í sögulegu langtímamarkmiði þá höfum við notað allt of lítið af fjármunum á síðastliðnum 12–13 árum sem síðan hefur kallað á það að við höfum sett of lítið af fjármunum í viðhald. Á þeim tíma sem ég hef verið í ráðuneytinu erum við líklega búin að meira en tvöfalda fjármuni til viðhalds, farin úr einhverjum 5–6 milljörðum í 11–12, en þeir þyrftu að vera komnir í 15 því annars mun innviðaskuldin vaxa. Við þurfum að auka vetrarþjónustuna og ég hef sagt að það sé einfaldlega áskorun í þessari samgönguáætlun að þessir tveir liðir séu undirfjármagnaðir.

En síðan vil ég segja að með því að búta þetta upp og fara að hugsa aðeins út fyrir boxið með því að setja hér jarðgangaáætlun og hér samgöngusáttmálann og hér flýtileiðirnar, samvinnuleiðirnar þar sem Sundabrautin er langstærst, og síðan samgönguáætlun, þá mun okkur loks takast að ná að setja þetta hlutfall af fjárfestingu í ásættanlegt hlutfall, ef við horfum t.d. á hvað Noregur hefur verið að gera síðastliðin tíu ár. En það er ekki fyrr en allt þetta er komið saman og þá erum við að tala um kannski 50–70 milljarða framkvæmdir á ári en ekki 15–25, eins og samgönguáætlunin kallar á. Við náum ekki að halda utan um það að byggja upp í jarðgöngum, í flýtiverkefnunum, í samgöngusáttmálanum, auk þess bara að byggja upp samgöngukerfið í heild sinni, öðruvísi en að fara þarna út fyrir boxið, að hugsa og taka inn gjaldtöku sem hluta af fjárfestingu.