154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.

315. mál
[15:53]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Undantekning frá þessu var nú að 2009 og að mig minnir 2010 lögðum við miklu meira í vegamál en sögulega síðustu 20–30 ár.

Mig langar að fara aðeins í kjördæmið mitt. Í fyrsta lagi spyr ég hvort það sé ekki í rauninni skrýtin tilhögun að ráðast í það að byggja mjög dýran og nauðsynlegan veg eins og Dettifossveg og verja svo ekki nægilegu fé í vetrarþjónustu, sem er þá akkillesarhæll bæði fyrir ferðaþjónustu og stór útflutningsfyrirtæki sem þurfa um þennan veg.

Í öðru lagi hvort það sé ekki algerlega óforsvaranlegt að halda ekki inni brúnni við Goðafoss, sem er tilbúin í útboð, fullhönnuð og allt í lagi, þegar hin leiðin sem er möguleg neðar við Skjálfanda er ekki einu sinni fær nema bara fólksbílum. Hvort við eigum að sætta okkur við það að þessi fjölfarni staður milli landshluta í kjördæminu verði án þessara tenginga.

Í þriðja lagi langar mig að spyrja, vegna þess að Austurland hefur staðið sig gríðarlega vel í sameiningarmálum og ætlast til að það fái vegabætur á móti: (Forseti hringir.) Þurfum við ekki að spýta meiru í varðandi Suðurfjarðaveg?