154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.

315. mál
[15:58]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil segja við ágætan hv. þingmann að ef hann hefði lesið umhverfisskýrsluna sem fylgir þessu þá myndi hann ekki hafa haldið þessa fyrirspurnaræðu hér því að við erum að gera mjög margt metnaðarfullt, mjög margt. Samgöngusáttmálinn í heild sinni er það auðvitað. Stuðningur við almenningssamgöngur er það líka. Ég vil bara minna hv. þingmann á að það er ekki ríkið sem rekur almenningssamgöngur, það eru sveitarfélögin. Við erum að greiða talsvert fé þar til en við erum líka tilbúin til að setjast niður og höfum verið í viðræðum við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um að koma jafnvel enn sterkar að þeim rekstri. Þannig að það vantar ekki metnaðinn hjá okkur. Orkuskiptin munu auðvitað líka skila mjög miklu.

Varðandi hjólastígana, sem hv. þingmaður nefndi sem einhvern sérstakan lapsus hjá okkur, þá er akkúrat í samgöngusáttmálanum sennilega búið að tvöfalda eða þrefalda þær áherslur sem þar voru upphaflega og gríðarleg uppbygging sem annars vegar er búin eða er fyrirhuguð á þessum hluta samgöngusáttmálans sem hefur gert það að verkum að þeir fjármunir sem við erum síðan með í samgönguáætlun eru þá að nýtast til hjóla- og göngustíga annars staðar á landinu í svona „fifty/fifty“-verkefnum á móti sveitarfélögunum. Þannig að ég held við séum að gera vel þar líka.

Það er hins vegar þannig að það verður ekki nóg að gert fyrr en að orkuskiptin eru gengin nægilega hratt í gegn, þ.e. að við séum komin meira og minna á nýja orkubíla og hætt að brenna dísil og bensíni. Þó að það séu ekki nema sjö ár til 2030 þá eru það þó sjö ár og það er býsna langur tími, alla vega í pólitík.