154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.

315. mál
[16:00]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svarið. Það er einfaldlega þannig að það sem hæstv. ráðherra kemur að í svari sínu, að það séu sveitarfélögin sem reka strætókerfið — það er vandamálið. Vandamálið er að sveitarfélögin, sem eru núna fjársvelt í mörgum málaflokkum, geta einfaldlega ekki rekið kerfið eins og þarf að reka það. Þess vegna þarf ríkið einfaldlega að stíga fastar inn og koma betur að þessum rekstri. Það sem er kannski vandamálið með hjóla- og göngustígana er hvort þessir stígar sem eru lagðir séu að nýtast. Það er ekki hugað að því — undirritaður hefur töluverða reynslu af því — að þessi stígar tengist nógu vel og tengi saman svæðin sem þeir þurfa að tengja. Það er vandamál sem þarf að leysa.