samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028.
Virðulegur forseti. Þegar maður keyrir um landið þá keyrir maður yfirleitt þjóðveg 1, hringveginn, en hins vegar þegar ég keyri um mitt eigið kjördæmi og fer á Snæfellsnes og á Vestfjarðakjálkann þá er fjarlægðin frá þjóðvegi 1 miklu meiri, þannig að þar eru stofnvegir, þar eru tengivegir. Ég get tekið dæmi um stofnveg sem ætti að vera löngu búið að gera, þ.e. Skógarstrandarveg. Ég tel að bæði Snæfellsnes og Vestfirðir njóti þess ekki og ekki tekið tillit til þess að þeir eru ekki nálægt þjóðvegi 1. Það verður að líta sérstaklega til þess. Ég sé gríðarlegan mun á vegum á Vestfjörðum og annars staðar á landinu, ég verð bara að segja alveg eins og er, þegar ég keyri t.d. Dynjandisheiði, sem er reyndar verið að vinna í, og ég tala nú ekki um þegar ég fer veginn til Bíldudals af Dynjandisheiði. Ég tek eftir því í samgönguáætlun að það er verið að seinka veginum til Bíldudals. En ég tel mikilvægt að það verði farið í sérstakt átak varðandi Vestfirði í ljósi þeirrar nýju atvinnugreinar sem er að eflast með degi hverjum hér á Íslandi og (Forseti hringir.) þegar talað er um nýsköpun í íslensku atvinnulífi þá á ríkisvaldið að koma sterkt inn til að styrkja stoðirnar þar. (Forseti hringir.) En ég ítreka spurningu mína til ráðherra varðandi jarðgöng á Vestfjörðum, hvort það væri ekki rétt að bjóða þessi þrjú jarðgöng út í einu lagi.