samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028.
Virðulegur forseti. Eins ég nefndi hérna í andsvari fyrr, ef við hefðum umtalsvert meiri fjármuni úr að spila í samgöngumálum þá gæti maður auðvitað sagt já við öllum góðum hugmyndum hv. þingmanna þegar þær koma úr þeirra kjördæmi. Varðandi malarvegaspurninguna í fyrra andsvari þá er það auðvitað bara hluti af því skipulagi sem samgönguáætlun lýtur að. Ég nefndi að við værum með í tengivegapottinn um 2,5 milljarða, vorum lengi vel bara með innan við milljarð á öllu Íslandi. Það þýðir að við munum taka um 619 km á þessum 15 árum og þar til viðbótar 200–300 km á stofnbrautum þannig að það verða yfir 800–850 km, ef ég man rétt. Varðandi síðan jarðgöngin þá segir í núgildandi samgönguáætlun að það eigi að vera a.m.k. ein í gangi í einu. Hér er verið að leggja fram jarðgangaáætlun til 30 ára þar sem er ekkert því til fyrirstöðu að bjóða út fleiri en ein göng í einu, menn geta raðað þeim inn og ég nefndi að framkvæmdirnar þyrftu að vera (Forseti hringir.) á bilinu 12–15 milljarðar á ári á tímabilinu til þess að við næðum þessu á 30 árum. Hinn valkosturinn er að gera þetta á hundrað árum og gera bara ein til tvenn í einu.