samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svörin. Það er nefnilega mjög mikilvægt að það komi skýrt fram hér við þessa fyrri umræðu og í þessum sal hvaða greining liggur til grundvallar jarðgangaáætlun. Ég efast ekkert um að hún hafi verið vandlega gerð og ég efast ekkert um að þar hafi verið farið af stað af yfirvegun og eins og hæstv. ráðherra benti á, að Fjarðarheiðargöngin hafa farið í gegnum umhverfismat og þau eru í rauninni tilbúin. Það er kannski erfiðara að fá fólk í öðrum landshlutum til að sætta sig við niðurstöðuna en það er hins vegar þá verkefni þeirra sem samþykkja þessa áætlun óbreytta og ég geri svo sem ekki athugasemdir við það.
Það er auðvitað rétt sem hæstv. innviðaráðherra minnti á, að varaflugvallargjaldið sem var samþykkt hér í vor mun dekka skuldina hvað varðar uppbyggingu flugvalla. Viðhaldsþörf vega er auðvitað mikil og kannski ég fái bara að splæsa því hér við hvort ráðherrann hafi íhugað einhverjar aðrar gjaldtökuleiðir vegna viðhaldsþarfarinnar. Verð ég nú örugglega sökuð um að vera sósíaldemókrati sem vill hækka skatta en ég ætla bara að láta mig hafa það af því að það væri gott að fá við því svör. Svo ítreka ég það sem ég nefndi hér um samvinnuverkefnin og einkafjármögnunina.