samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Virðulegur forseti. Okkur hefur aðeins seinkað og það hefur dregist að leggja fram frumvörp eða hugmyndir um það hvernig þessi nýja tekjuöflun á að eiga sér stað. Það er verkefnastofa, ég kom inn á það, sameiginlega með innviðaráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu sem er að störfum og er að skoða annars vegar þessa breytingu þar sem við erum að fara úr bensín- og dísilgjöldum yfir í annars konar fyrirkomulag, og er reyndar fyrsti áfanginn að koma inn í fjárlögin á næsta ári, en það tengist þá líka hvernig við fjármögnum flýti- og umferðargjöld innan samgöngusáttmálans, hvernig við munum fjármagna einhvers konar notkunargjöld í jarðgöngum, hvernig við greiðum fyrir flýtingu samvinnuleiðanna. Ég held að það sé í sjálfu sér alveg nóg og við eigum ekki að fara að taka einhverja peninga af öðrum og ætla ég heldur ekki að saka hv. þingmann um að vilja hækka skatta þótt það sé nú oft sá svipur á Samfylkingunni þegar hún kemur hérna upp og leggur það til. (Gripið fram í.) — Oft. En þá held ég að sú áskorun eigi bara að standa okkur nær í samgönguáætluninni að forgangsraða auknum fjármunum í sífellt meira mæli í það og að sætta okkur við að þegar við erum að byggja upp þá kostar það líka að eiga. Þetta gildir auðvitað líka um húsnæðið okkar og alla mygluumræðuna sem við þekkjum þar.
Ég held að samvinnuleiðarverkefni séu algerlega nýtileg leið á Íslandi. Hvalfjarðargöngin gengu frábærlega en svo bara gleymdu menn að nota þetta. En þegar við fórum af stað fyrst vorum við með lítil verkefni, við vorum langt úti á landi og það voru allir hræddir. Það þóttust allir vilji vera með en svo voru þeir hræddir. Þetta voru svolítið viðsjárverðir tímar hvað varðar vexti og breytingar á þeim, sem hafa svo sannarlega orðið. Ég heyri ekki annað en að það sé raunverulegur áhugi t.d. hjá lífeyrissjóðunum okkar að koma að þessu og ég heyri ekki annað en að við munum finna leiðir. Þær leiðir eru til hjá öðrum löndum. Danir hafa t.d. farið einhverja ríkisábyrgðarleið vegna þess að það verður að vera valkostur (Forseti hringir.) ef þú færð ekki nægilega góð tilboð að þú getir farið ríkisleiðina að fjármagninu. Það er það sem við erum að gera með heimildinni inn í fjárlög og annað, að hreinlega sýna fram á að þótt við séum ekki nákvæmlega komin með leiðina þá eru til leiðir.