samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Frú forseti. Ég þakka svörin, sérstaklega er varða samvinnuverkefnin og þessa PPP-leið. Ég held að þurfum að horfast í augu við það að það er auðvitað þannig að á endanum borgar ríkið þótt verkefnið heiti PPP, það er oftar en ekki þannig. En það sem hæstv. ráðherra nefndi um forgangsröðun í viðhaldið og gjaldtökuna og að því hafi seinkað að leggja fram frumvörp um tekjuöflun, t.d. um flýti- og umferðargjöld á höfuðborgarsvæðinu — í þessari áætlun blasir við þörfin fyrir því að við sjáum þessi frumvörp og að þetta spili allt saman við annað sem við erum að fjalla um hér. Það er ósköp einfaldlega þannig þó að við beitum ekki öðru en mengunarbótareglunni á umferðina að þeir sem nota og þeir sem menga, þeir greiða. Þannig þarf það að vera hér eins og alls staðar annars staðar í heiminum og það hljótum við að geta gert með sanngjarnri og hóflegri gjaldlagningu. En ég hygg að þessi frumvörp sem hér hafa verið nefnd, og þeim hefur seinkað, eins og ráðherrann benti á, þyrftu að birtast hér í þessum sal sem allra fyrst.