samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að fara yfir stöðuna og það er bara mjög jákvætt að við séum komin á þann stað að vera í 1. umræðu um samgönguáætlun. Mig langar að nota mínar mínútur aðeins bara til að ræða hitt og þetta og fara yfir stóru myndina og svo skoða kannski smærri verkefni. Mér finnst hafa komið fram í mörgum ræðum í dag hvað stóra myndin er skökk, hvað við höfum orðið algjörlega sprungið kerfi hér á stórhöfuðborgarsvæðinu. Þá er sama hvort við horfum til samgangna, húsnæðis, skólamála eða hvað svo sem það er, á meðan við eigum gríðarlega vannýtt svæði og tækifæri víðar um land. Það er bara pólitísk ákvörðun hvort við ætlum að halda áfram að bútasauma og reyna að redda, og það kom fram hér í máli hv. þingmanns sá fjöldi bíla sem þarf að nota samgöngukerfið hér af því að það er pólitísk ákvörðun um að hér eigi allir að búa, og ég held að bara á meðan við höfum ekki stærra landrými á suðvesturhorninu þá stefnum við í dálitlar ógöngur.
Mig langar að fagna því að vera farin að sjá fyrir endann á Fjarðarheiðargöngum. Við látum eins og nú sé þetta svolítið klappað og klárt en það á reyndar eftir að grafa göngin sem verður líklega dálítið hressilegt og stórt verkefni en það er gríðarlega mikilvægt. Mig langar að koma að því út frá þessu sem ég er að ræða um, hinum pólitísku ákvörðunum og hvert við erum að stefna og hvert við höfum verið að stefna mjög lengi. Hæstv. ráðherra kom aðeins inn á fjármögnunarþáttinn í samgöngumálum. Það er mín skoðun að það sé ekki endilega farsælast að það séu lífeyrissjóðir landsmanna sem séu að leggja til fjármagn í þessi verkefni. Hér var rætt um lán með ríkisábyrgð og ef við horfum til Færeyinga, vina okkar þar, sem hafa verið ákaflega farsæl í sínum samgöngumálum, þá held ég að við mættum læra talsvert af því, af því að ég held að það kosti gríðarlega fjármuni og langan tíma að við stöndum alltaf frammi fyrir því að vera að rífast um það hvort við séum að fara í framkvæmdir hér eða þar, hvort það sé höfuðborgin, Austfirðir, Vestfirðir eða hvað, og á meðan við erum einhvern veginn að reyna að ákveða hvert við ætlum að stefna þá fer bæði tími og peningur til spillis. Ég held að það væri farsælt að geta verið í fleiri verkefnum í einu og þetta hefur vissulega lagast á undanförnum árum en ég held að við ættum að geta gert miklu betur.
Hér var komið inn á t.d. mengunarbótaregluna og fleira. Það er auðvitað þannig að samgöngukerfið okkar kostar peninga og svo fer það líka eftir því hvert álagið er á hverjum stað og hvers konar samgöngur við erum að vinna með og horfa til. En nú er mikið talað um öflugt atvinnulíf, að það skipti svo miklu máli að fá samgöngurnar til að efla atvinnulífið enn þá meira. Mig langar aðeins að snúa þessu við. Þar sem við höfum gríðarlega öflugt atvinnulíf, þar sem við höfum mjög stóran hluta af útflutningstekjum þjóðarinnar frá ákveðnum svæðum, þá þætti mér ekkert óeðlilegt að þeir sem nota kerfið af slíkum mætti og slíkum þunga að það getur ekki verið horft fram hjá því hversu mikið álag á samgöngukerfinu okkar það er, og þá er ég fyrst og fremst að vísa í þungaflutninga á nú þegar kannski vanfjármögnuðum slóðum, Vestfjörðum og Austurlandi, þá finnst mér allt í lagi að við horfum aðeins til þess líka. Ég fagna því alltaf þegar öflug fyrirtæki, hvort sem er í sjávarútvegi eða stóriðju eða hvað það er, sýna lit og samfélagslega ábyrgð. Það er góðra gjalda vert að byggja eitthvert íþróttahús eða gefa 100.000 í lúðrasveitina á staðnum, en við verðum líka að horfa til þess að innviðina sem er verið að byggja upp í þessum samfélögum eru þessi fyrirtæki að nýta og þau þyrftu hugsanlega að borga stærri hluta af kökunni.
Nú er nýlokið kjördæmaviku og við þingmenn allra kjördæma erum kannski dálítið lituð af því. Við erum mjög impóneruð eftir þessa viku, höfum átt marga fundi og heimsótt mikið af sveitarfélögum og fyrirtækjum og auðvitað alls staðar sem við komum eru samgöngurnar á dagskrá og eðlilega. Ég er að austan og ég myndi ekki skilgreina mig sem aldraða konu þótt ég sé ekkert sérstaklega ung. Staðan er samt sú að ég man eftir því í minni æsku að við vorum alveg að fara að laga Axarveg. Margt hefur gerst og margt hefur breyst og ákvarðanir hafa verið teknar og hringvegurinn hefur verið færður og það hefur verið farið í PPP. Staðan er hins vegar sú í október árið 2023 að Axarvegur, sem er lífæð innan sveitarfélags, er algerlega óboðlegur eins og hann er. Vetrarþjónustu er ábótavant á meðan ekki verður komið á heilsársvegi. Þetta er ótrúlega sérstakt. Hugmyndafræðin um PPP er ekki slæm en ég tek undir það sem hefur komið fram í umræðunni: Er hún raunhæf í okkar landi, í okkar fjármálaumhverfi, í okkar verktakaumhverfi? Verður þetta einhvern tímann raunhæfur kostur sem gæti verið gagnlegt að nýta? A.m.k. hefur það hvorki verið við Hornafjarðarbrú né Axarveg en við skulum vona hið besta.
En annað er það sem mig langar að koma inn á, þessar mínútur líða hratt, og það er varðandi ferðaþjónustuna. Ferðaþjónustan á landinu hefur vaxið gríðarlega og er orðin ein af okkar stóru undirstöðum í þessu landi og ég upplifi dálítið á svo mörgum sviðum, ekki bara hvað varðar hótelgistingu sem er uppbókuð langt fram á næsta ár, varðandi alls konar þætti — og ég hef talað fyrir því að ég myndi vilja sjá meira gert en gistináttagjaldið. Það er mín persónulega skoðun að ég myndi vilja setja gjald á alla gesti sem koma, til innviðauppbyggingar.
Eitt af því sem er mjög áhugavert er að lögregluembættin um landið eru dugleg að setja fréttir á samfélagsmiðla, t.d. af því hvernig hefur gengið í ökueftirliti á svæðunum. Og ítrekað hefur það komið fram að fjöldinn allur hefur verið stöðvaður fyrir of hraðan akstur og um og yfir 90% eru erlendir ferðamenn á bílaleigubílum á hættulegum vegum, inni á fjöllum, á stöðum þar sem er erfitt fyrir okkur þó hér víkingana að keyra. Ég held að þetta sé algerlega stórslys í uppsiglingu og mig langar þá sérstaklega benda á einn stað sem er brú yfir Skjálfandafljót við Goðafoss. Það er auðvitað sturluð staðreynd að þar sé einbreið brú en ég held að við getum ekki beðið og mig langar að brýna ráðherra, að sjálfsögðu áfram til góðra verka en mig langar að brýna hann í því að þangað til að við komumst í það að byggja nýja brú verður að koma upp umferðarstýringu. Þarna eru mörg þúsund og jafnvel tugir þúsunda á dag þar sem er einbreið brú og gatnamót og brekka. Þetta er svo hættulegur staður. Ég veit að við viljum öll gera vel og við þurfum að nýta okkur þetta tækifæri sem felst í ferðamannaiðnaðinum en það þýðir líka að við þurfum að bera ábyrgð. Við viljum ekki standa frammi fyrir stórslysum sem má jafnvel rekja til þess að innviðirnir okkar séu svo slakir að þar hafi þetta verið fyrirséð. Ég þakka annars fyrir þessa góðu umræðu og hvet ráðherrann áfram.