samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Hann kom aðeins inn á hluti sem mér fannst nauðsynlegt að skýra strax. Ég hef heyrt hv. þingmann halda því fram áður að hann skilji ekkert í því hvaða samhengi sé á milli Sundabrautar og Sæbrautarstokks. Þá langar mig að útskýra það í mjög einföldu máli. Það hefur alla tíð verið ákveðin forsenda að koma þeirri umferð sem kæmi í gegnum Sundabraut, þegar hún kæmi inn á Sæbrautina, einhvern veginn fyrir og það að koma Sundabrautinni á núna í núverandi vegakerfi þar sem ekki væri stokkur eða mislæg gatnamót eða eitthvað annað til að taka við þessari umferð, væri ógerlegt. Þess vegna hangir þetta saman og þess vegna er verið að reyna að raða þessum verkefnum þannig í tímaröð að þau taki við. Það sama gildir auðvitað um viðbragðshúsið, öryggishúsið sem átti að byggja þarna. Það þýðir ekkert að byggja hús þar sem ekki er komist út á greiðfæran aðalveg til að geta bjargað fólki, ekki satt, hv. þingmaður? Mér finnst þetta nokkuð augljóst. Hv. þingmaður má þá útskýra fyrir fólki að það sé ekkert mál að fá 40.000 bíla inn á Sæbrautina ofan í það sem gerist núna og það hafi engin áhrif. Ég held að það sé nokkuð augljóst að Sæbrautarstokkurinn og Sundabrautin hanga saman og eru forsenda hvort annars, það er nokkuð augljóst.
Síðan langar mig að nefna, af því að hér hefur aðeins verið fjallað um gjaldtökuna og hún sé þreföld: Hún er auðvitað ekki þreföld þó að það séu þrír ólíkir flokkar, gjaldtakan er auðvitað nokkuð einsleit. Jarðgöng eru að meira og minna leyti úti á landi. Samgöngusáttmálinn er meira og minna hér á höfuðborgarsvæðinu, eðlilega, þetta er samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins. Samvinnuleiðirnar eru síðan þar sem umferðin er hvað mest og nýlegur þungi og mikilvægt að flýta verkefnum. Allt þetta og þessi breyting með orkuskiptunum, úr bensín- og dísilgjaldi, er verkefni sem er hjá verkefnastofu sem er sameiginlegt verkefni þriggja ráðuneyta. Nákvæmlega hvenær tillagan kemur og verkefnið inn (Forseti hringir.) þori ég ekki að fullyrða. En þetta er ekki mismunandi gjaldtaka. Hún er einmitt gerð til þess að það sé samræmi og það greiði allir inn í það sama hvar þeir keyra á landinu.