samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Virðulegur forseti. Í þessum verkefnum sem við vinnum að í samgönguáætlun og reyndar líka hjá Betri samgöngum þá eru fjögur, ég hef einhvern tíma nefnt fimm, hönnunarstig: skilgreining, frumdrög, forhönnun og verkhönnun. Þau fara frá því að vera með allt að 70% óvissu niður í 15%, mínus 5–15% þannig að verkefnin breytast. Ég er einfaldlega samgönguráðherra en ekki umferðarsérfræðingur. Það eru umferðarsérfræðingar sem leggja til hugmyndir um það hvernig hægt sé að koma fyrir fleiri bílum og hvaða leiðir séu til þess. Ein leiðin er Sæbrautarstokkur. Ég treysti þeim af því að ég hef ekki vit til þess að halda öðru fram þó að ég sé samgönguráðherra. Sjálfsagt getur nefndin fengið upplýsingar hjá þessum aðilum sem eru að véla um þetta, teikna og hanna og setja inn í umferðarlíkön um það hvernig hlutirnir ganga fyrir sig til þess að fá betri upplýsingar og skilja þá af hverju það er nauðsynlegt að hafa Sæbrautarstokk til að taka við þeirri umferð sem þar birtist. Ég einfaldlega trúi þessum sérfræðingum sem við erum með í vinnu til þess að gera það.
Mig langaði bara að koma örstutt inn á það sem hv. þingmaður var að tala um flugstöðina í Reykjavík. Isavia er auðvitað að byggja flugstöðina á Akureyri og á þessar flugstöðvar. Ef Isavia fær það verkefni að gera þetta þá finna þeir bara bestu leiðina til þess og ef það eru einhverjir aðilar sem eru tilbúnir til að gera það með hagkvæmari hætti en Isavia er örugglega hægt að skoða það. Ég er sammála hv. þingmanni um að þetta er verkefni sem er þess eðlis. Það hafa hins vegar engir staðið í röð til að gera það hingað til enda er húsið hálfgerð hörmung að sjá og þjónustar ekki fólk með almennilegum hætti, sem ég held að við báðir getum verið sammála um.