samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Virðulegur forseti. Mig langar í nokkrum orðum að ræða um þessa ágætu samgönguáætlun sem hér liggur fyrir fyrir árin 2024–2038 og aðgerðaáætlun frá 2024–2028. Um er að ræða yfirgripsmikla þingsályktunartillögu þar sem m.a. forgangsröðun í vegasamgöngum, hafnarframkvæmdum og flugvöllum er sett niður. Ljóst er öllum að þau verkefni sem bíða á þessu sviði eru gríðarlega umfangsmikil og þeir fjármunir sem í áætlunina eru settir duga ekki til þess að fara í allar þær framkvæmdir sem þörf er á hringinn í kringum landið. Hins vegar er stigið stórt skref í þá átt að koma mjög brýnum og arðbærum verkefnum á dagskrá.
Samgöngur eru ein af forsendum þess að landið sé allt í byggð. Mikilvægi þess verður seint of oft sagt. Samgöngur milli landshluta, tenging byggðakjarna, tenging landsvæða og tenging dreifbýlis við þéttbýli er grunnþáttur í því að landsbyggðin geti þrifist. Öruggar flugsamgöngur þar sem vegalengdir eru miklar frá höfuðborginni eru ein af forsendum byggðafestu þeirra svæða. Aðgengi íbúa og fyrirtækja að þjónustu, verslun og síðast en ekki síst heilbrigðisþjónustu þarf að vera tryggt allt árið um kring. Halda þarf áfram uppbyggingu ferjusiglinga þar sem þeirra er þörf og ánægjulegt að sjá að þess ber glöggt merki í þessari áætlun.
Hafnarmannvirki og uppbygging þeirra eru byggðum landsins lífsnauðsynlegar. Útflutningur og hafsækin starfsemi hefur aukist verulega á síðustu árum og má þar nefna hafnirnar í Þorlákshöfn, Njarðvík og á Sauðárkróki. Eins er fyrirhuguð uppbygging á fjölmörgum höfnum á sunnanverðum Vestfjörðum þar sem aukning hefur orðið hvað mest á liðnum árum með auknu sjókvíaeldi. Fjárfesting í höfnum mun efla grundvöll atvinnulífs um allt land og skapa ný tækifæri til atvinnuþróunar.
Vegagerðin hefur áætlað að uppsöfnuð viðhaldsþörf á þjóðvegakerfinu sé á bilinu 70–80 milljarðar. Isavia hefur áætlað að uppsöfnuð þörf í flugvallakerfinu sé um 20 milljarðar. Þetta eru verulegir fjármunir, virðulegur forseti. Til framtíðar er því nauðsynlegt að fjárfesting í samgönguinnviðum verði nægjanleg til þess að tryggja öryggi og að samgöngukerfið geti komið til móts við þarfir þjóðar og þróun okkar mörgu atvinnuvega alls staðar um landið og ferðaþjónustunnar sömuleiðis. Með fjárveitingu þeirri sem lögð er til á tímabilinu má að öllum líkindum leggja bundið slitlag á um 525 km. Lagt er til að skipting fjárins fari eftir umferð og lengd tengivega á hverju svæði án bundins slitlags. Heimilt er einnig að nota fjárveitingu til að framkvæma á héraðsvegum sem gegna hlutverki tengivega og eftir atvikum einnig á umferðarlitlum stofnvegum. Ég vil í þessu samhengi aðeins ítreka mína skoðun á þessu máli. Ég held að það sé mjög mikilvægt þegar Vegagerðin er að meta þessa vegi að það sé horft til fleiri þátta en bara umferðarþunga. Það skiptir máli að það sé horft til íbúasamsetningar, þ.e. hvernig búin eru eða bæirnir sem eru við viðkomandi veg, er um skólaakstur að ræða, er atvinnustarfsemi eða þess háttar, þannig að ég held að við þurfum aðeins að horfa á þetta með breiðara sjónarhorni en við höfum gert hingað til.
Samvinnuverkefnin um Hornafjarðarfljót, Ölfusá, Öxi, Reynisfjall og Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganga eiga það sameiginlegt að skapa mikinn samfélagsábata með styttri ferðatíma. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á í sinni opnunarræðu hefur félagsfræðilegt mat á Sundabraut sýnt fram á gríðarlegan samfélagslegan ábata sem er metinn á allt að 186–236 milljarða eftir útfærslu. Það eru gríðarlegir fjármunir og ég vil bara ítreka það og hvetja hæstv. ráðherra til að halda því verkefni áfram, Sundabrautinni, og reyna að hraða því eins og kostur er, enda held ég að hér sé eitt arðbærasta samfélagslega verkefni í vegaframkvæmdum á landinu sem hægt er að fara í. Þetta er ekki bara fyrir höfuðborgarsvæðið eða Vesturland. Þetta mun nýtast bæði okkur sem búum á Norðurlandi og eins Vestfjörðum þannig að það er gríðarlega mikilvægt að þetta verkefni nái fram að ganga.
Virðulegur forseti. Það eru margir mikilvægir jarðgangakostir um allt land og líklegast er þörfin brýnust á Vestfjörðum, Tröllaskaga og Austfjörðum. Fjármögnuð langtímaáætlun þar sem 14 mikilvægustu jarðgangakostir landsins koma til framkvæmda á næstu 30 árum í stað 80 eða 100 mun gjörbylta lífskjörum og styrkja til muna samkeppnishæfni landshluta með betra aðgengi að þjónustu. En það er ekki nægjanlegt að byggja nýja vegi og laga þá sem fyrir eru heldur þarf að þjónusta þá. Vetrarþjónustan er samfélögunum á landsbyggðinni er gríðarlega mikilvæg og mikilvægt að sú vinna sem nú er í gangi varðandi endurskoðun á vetrarþjónustu Vegagerðarinnar endurspegli vilja og þarfir íbúa og atvinnulífs á hverju svæði fyrir sig. Vetrarþjónustan er ekki bara mikilvæg fyrir vöruflutninga. Áreiðanlegar samgöngur allt árið um kring skipta alla vegfarendur máli og eru lykilþáttur í að efla vinnusóknarsvæði. Sterk vinnusóknarsvæði efla atvinnuþróun og af því leiðir að fyrirtækin geta leitað mannauðs af stærra svæði en bara því byggðarlagi sem þau eru í. Þetta á líka við, virðulegur forseti, um þau svæði sem við höfum verið að ræða hér um og hvetja til sameininga. Það er algerlega ljóst að það er ekki hægt að ætlast til að sveitarfélög sameinist öðruvísi en að samgöngur á milli þeirra svæða séu tryggar. Slíkar sameiningar munu aldrei takast nema við getum nýtt þjónustukjarnana og tækifæri sem í sameiningunni felast þannig að það er mjög mikilvægt að það sé horft m.a. til þess og horfi ég nú til Vestfjarða í því efni í þessari ræðu minni.
Mig langar aðeins að ræða hér um einn þátt sem kemur fram í þessari þingsályktunartillögu sem er samfélagslegur kostnaður af umferðarslysum. Hann er metinn á um 40–60 milljarða kr. Það er því gríðarlega mikilvægt að vinna að auknu umferðaröryggi með öllum þeim ráðum sem til eru. Framkvæmd umferðaröryggisáætlunar er á forræði innviðaráðuneytisins en ábyrgð verkefna liggur hjá ráðuneytinu ásamt Vegagerðinni, Samgöngustofu og ríkislögreglustjóra. Eftirlitið er í höndum lögreglu en Vegagerðin ber ábyrgð á úrbótum á vegum og sér um uppsetningu og rekstur hraðamyndavéla, fræðslu og forvarna hjá Samgöngustofu.
Mig langar aðeins að minna á að fyrir nokkrum árum var samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og lögreglunnar sem fólst í því að Vegagerðin greiddi lögreglunni ákveðið mikið fyrir tíma sem var eytt í umferðarlöggæslu og ég get vitnað um það hér í þessum stól að niðurstaðan af því verkefni var gríðarlega góð og við höfum sýnt það og sannað að aukin löggæsla á vegum landsins getur lækkað slysatíðni um tugi prósenta. Ég held að það sé eitt sem við eigum að horfa vel í varðandi þennan þátt, samtal Vegagerðarinnar og lögreglunnar. Ég held að þar séu mikil tækifæri og sömuleiðis varðandi fræðslu í skólum og framhaldsskólum. Ég held við eigum að byrja hreinlega í grunnskólum. Þetta er eitthvað sem því miður hefur ekki verið nægilega vel sinnt á undanförnum árum og eru mikil tækifæri í því. Ég er sannfærður um að ef við myndum fara í slíkt átak myndi það skila okkur margföldum fjárhagslegum kostnaði fyrir utan þann sára kostnað og þá angist sem fylgir því að lenda í slysi eða eiga ástvini sem lenda í slysi.
Virðulegur forseti. Tími minn er nú á enda. Ég hefði getað haldið töluvert lengur áfram. Mig langar aðeins í lokin að tala um Reykjavíkurflugvöll. Þar er verið að undirbúa núna að endurnýja flugstöðina sem ég held að sé gríðarlega mikilvægt til þess að tryggja þennan flugvöll áfram í Vatnsmýrinni. Þar viljum við hafa hann. Ég bendi á það í því samhengi að nýi Landspítalinn, sá glæsilegi sem hér er að rísa, er þar af ástæðum sem eru m.a. að flugvöllurinn er í Vatnsmýri. Það er gríðarlegt hagsmunamál fyrir íbúa landsbyggðarinnar, öryggismál sem ég er afskaplega glaður að sjá að er tekið af skarið með núna, að tryggja núverandi stöðu hans í Vatnsmýri.