154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.

315. mál
[19:12]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir sína yfirferð og framsögu á þessari samgönguáætlun til 15 ára og svo aðgerðaáætlun til fimm ára. Það er kannski rétt að byrja á því að segja að ég, eins og aðrir hv. þingmenn hér inni, var að koma úr kjördæmaviku sem var í síðustu viku þar sem við fórum um kjördæmi hér á suðvesturhorninu. Þar var ýmislegt rætt en það er eitt sem var sameiginlegt með öllum fundunum og það er að alls staðar var rætt um samgöngumál. Ég ætla aðeins að koma inn á það hér á eftir. Ég ætla að setja fókusinn aðallega á tvennt, þ.e. þær framkvæmdir sem eru tilgreindar og hefur verið farið í í kjördæminu á síðustu árum og eru fram undan og svo auðvitað sérstaklega samgöngusáttmálann, aðeins að fara inn á hafnirnar og þá sérstaklega varðandi hvaða framtíðarsýn við höfum fyrir næstu stórskipahöfn. Ég sakna þess aðeins að það sé komið inn á það með einhverjum hætti í þessu viðamikla plaggi. Svo langar mig aðeins að koma inn á jarðgangaáætlunina og hugmyndir að nýrri og annars konar gjaldtöku, sem ég tel að sé nauðsynlegt svo að við getum flýtt hér mjög framkvæmdum sem eru þjóðhagslega mikilvægar.

Að þessu sögðu þá vil ég auðvitað segja að hér erum við með fyrir framan okkur markmið um að samgöngur séu öruggar, hagkvæmar og umhverfislega sjálfbærar, auk þess sem þær stuðli að jákvæðri byggðaþróun. Lykilviðfangsefnin eru 15, sem hér eru talin upp, í samgöngumálum á Íslandi á næstu árum. Þar erum við með þetta eðlilega og góða markmið sem ég veit að hæstv. innviðaráðherra hefur haft ofarlega og í raun og veru efst á blaði, leyfi ég mér að segja, síðustu ár, þ.e. fækkun slysa í samgöngum. Það hefur verið forgangsmál hjá núverandi hæstv. innviðaráðherra. Svo erum við með þetta sem ráðherrann hefur tiltekið, þ.e. uppsafnaða þörf í samgönguinnviðum. Það er ný og annars konar fjármögnun í samgöngum svo við getum flýtt mikilvægum samgönguverkefnum.

Svo er auðvitað annað sem kemur þarna inn og er orðað með öðrum hætti en það eru þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir, eins og varðandi orkuskiptin og slíkt. En þarna eru líka mál sem eru mín hjartans mál, eins og þarfir fatlaðs fólks í samgöngum. Það eru mál sem við þurfum stöðugt að vera að velta fyrir okkur, hvernig við getum tryggt það að allir geti notið eðlilegra samgangna, hvort sem við lítum bara á einkabílinn eða á almenningssamgöngur.

Hér er góð markmið að finna sem ég veit að munu fá góða og eðlilega umfjöllun í um. og sam., umhverfis- og samgöngunefnd. Það eru ýmis mál sem koma fram í aðgerðaáætluninni en ég vil einna helst nefna hérna það sem fram kemur í aðgerðaáætlun og markmiðum um greiðar samgöngur, lið 1.3. Ég hef minnst á þetta atriði og er sérstaklega ánægður að sjá það hér inni. Ég hef minnst á þetta við bæði hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og hæstv. innviðaráðherra, þ.e. aðgengismál í orkuskiptum. Ég fagna þessu mjög. Þetta er aðgerð eða markmið 1.3 og með leyfi forseta vil ég lesa hér upp það sem fram kemur í greinargerðinni:

„Mótaðar verði hönnunarleiðbeiningar vegna hleðslustöðva fyrir bifreiðar með hliðsjón af fullu aðgengi í samræmi við ábendingar í skýrslu starfshóps um stöðu fatlaðs fólks í samgöngum.“

Þetta er sérstaklega mikilvægt og snýr að því að við þurfum að tryggja það svo að við lendum ekki í þeirri stöðu hér eftir fáein ár að það sé ákveðinn hópur í samfélaginu sem komi og geti ekki og hafi ekki aðgang að hleðslustöðvum og geti þar af leiðandi ekki tekið þátt í þessu mikilvæga verkefni sem orkuskiptin eru.

Ég vil auk þess þakka — og ég held að það sé alveg rétt að gera það vegna þess að þær framkvæmdir sem við höfum fengið á suðvesturhorninu á síðastliðnum árum eru mjög mikilvægar. Ég leyfi mér að nefna mjög brýnar framkvæmdir, þ.e. annars vegar tvöföldun Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi að nýjum mislægum gatnamótum við Krýsuvíkurafleggjara, sem er mjög brýn framkvæmd og mikilvæg og var framkvæmd hér á síðasta kjörtímabili. Nú er verið að hefjast handa við að klára þann vegarkafla, þ.e. að tvöfalda þann vegarkafla sem er frá Krýsuvíkurafleggjara hjá þessum nýju mislægum gatnamótum og að Hvassahrauni. Þetta er, eins og við vitum öll, eina leiðin eða því sem næst, þetta er aðalleiðin fyrir ferðamenn inn og út úr landinu og skiptir gríðarlega miklu máli að þarna sé öryggi haft í fyrirrúmi.

Svo vil ég benda á aðra framkvæmd hér. Auðvitað er hægt að taka ýmislegt til af því sem hefur verið gert en þetta eru þær stærstu framkvæmdir sem ráðist hefur verið í og fyrir það ber að þakka vegna þess að þær eru mjög mikilvægar þjóðhagslega og snerta okkur öll með einum eða öðrum hætti. Eins og við þekkjum eru miklar umferðarteppur á þessum stað samt sem áður á meðan við erum ekki búin að ljúka þeim, og það er hluti af þessum samgöngusáttmála, þ.e. frá gatnamótunum að Lækjargötu og að — hvað skal segja? Ég man nú ekki nafnið, herra forseti, en þetta er sem sagt frá Lækjargötu og að bara Ikea, ég held að flestir þekki nú og viti hvar Ikea er staðsett. En það er auðvitað mikil umferðarteppa sem þar myndast og brýnt að leysa úr því. En þangað til er mikilvægt að hraða sem mest framkvæmdum sem og tryggja öryggi um svokallaðan flóttamannaveg, sem er Elliðavatnsvegur eða Vífilsstaðavegur að Kaldárselsvegi. Við sjáum það, sérstaklega að morgni og seinni partinn að þá liggur umferðarþunginn þar í gegn og það er mikilvægt að sá kafli sé tryggður hvað varðar öryggissjónarmið.

Að lokum, af því að ég sé, herra forseti, að tíminn er alveg að renna frá mér, þær eru fljótar að líða, þessar tíu mínútur, þá vil ég nefna hérna sérstaklega og fjalla aðeins um samgöngusáttmálann sem er mjög mikilvægur. Umræðan hefur síðustu daga og vikur kannski farið aðeins út í kostnaðarþáttinn í honum. En mér finnst mjög mikilvægt, og ég held að við eigum að vera á þeim stað, að ræða hann þannig að í fyrsta skipti tókst það að öll sex sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu settust niður ásamt ríkisvaldinu og komu sér saman um forgangsröðun verkefna til næstu ára þannig að þar myndast heilt samgöngukerfi, hvort sem litið er til almenningssamgangna, gangandi, hjólandi (Forseti hringir.) eða þegar kemur að vegaframkvæmdum.

Ég myndi gjarnan vilja eyða meiri tíma, og hefði kannski átt að gera það, í þennan samgöngusáttmála, (Forseti hringir.) en mér finnst mjög mikilvægt að fókusinn og umræðan sé á þessum stað.