154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.

315. mál
[19:23]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég lít svo á að samgönguáætlun sé mikilvægasta áætlun sem lögð er fram á hverju þingi. Þegar maður ferðast um kjördæmi sitt þá eru það samgöngumálin sem skipta öllu máli; samgöngumál og sjávarútvegsmál og atvinnumálin. Í Norðvesturkjördæmi eru þau sérstaklega mikilvæg og ef ég byrja á því að fjalla t.d. um Vestfirði þá er ljóst að þar hefur ekki verið — við getum talað um innviðaskuld við Vestfirði. Þegar maður ferðast um allt landið þá sér maður að vegir á Vestfjörðum eru í verra ástandi en annars staðar á landinu. Ástæður þess geta verið margar. Ein er sú að þjóðvegur 1, hringvegurinn, fer ekki í gegnum Vestfirði og sama á við um Snæfellsnes. Það hefur verið lögð höfuðáhersla á það að byggja upp þjóðveg 1, hringveginn, en þá má segja að Vestfirðir hafi orðið út undan. Vestfirðir hafa líka verið í áratuga lægð og því hefur fylgt að einhverra hluta vegna hefur ekki verið lagt nógu mikið fé í innviði; vegi, raforkukerfið og fleiri innviði.

En núna er öldin önnur á Vestfjörðum, það er uppgangur á Vestfjörðum og gríðarleg atvinnuuppbygging vegna sjóeldis. Núverandi samgönguinnviðir, t.d. á sunnanverðum Vestfjörðum, bera þess greinileg merki að stjórnvöld hafa ekki sinnt svæðinu sem skyldi. Við getum nefnt dæmi eins og veginn um Hálfdan og Mikladal og veginn frá Dynjandisheiði til Bíldudals og sama á reyndar við t.d. annars staðar á Vestfjörðum ef við keyrum Strandirnar og að ógleymdum veginum um Gufudalssveit. Þegar ég var lögfræðingur Skipulagsstofnunar árin 2000–2006 var Teigsskógur á mínu borði og það er alveg klárt mál að það er gríðarlega mikilvægt að framkvæmdir við Vestfjarðaveg um Gufudalssveit tefjist ekki frekar. Það er þegar búið að bíða í rúm 20 ár eftir þessi vegur klárist. Ég keyrði þennan veg í gær og þar eru framkvæmdir í fullum gangi. Það var nú þannig þegar ég keyrði með frænda mínum í gegnum Þorskafjörðinn að þá sagði ég við hann: Ja, við erum að keyra vonandi í síðasta sinn Þorskafjörðinn, þ.e. fyrir botn Þorskafjarðar, og við stoppuðum við minnismerki Matthíasar Jochumssonar og tókum mynd. Við höfum oft stoppað þar, fjölskyldan, á leiðinni vestur og leiðinni suður og við tókum mynd af minnismerkinu um Matthías Jochumsson. Næst þegar ég keyri vestur þá vonast ég til að ég geti keyrt Þorskafjarðarbrúna.

Í samgönguáætlun er lagt til að framkvæmdum við Bíldudalsveg um Arnarfjörð verði seinkað enn og aftur og að þær framkvæmdir muni ekki hefjast fyrr en 2029 í stað 2025 eins og áætlað er samkvæmt núgildandi samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034. Mjög mikilvægt er að þessum vegi verði ekki seinkað frekar og framkvæmdir hefjist eigi síðar en 2025. Ég tel að þessi vegur, sem er gamall malarvegur með einbreiðum brúm, sé grundvallartenging, grundvallarvegur, mikilvægur vegur varðandi tengingu suðurfjarða við norðurfirðina í Ísafjarðarbæ. Ég hef keyrt þennan veg margoft og það er eins og að fara aftur í tímann til 1950. Það er svipað þegar maður keyrir Dynjandisheiðina. Það er sem betur fer verið að vinna í Dynjandisheiði og það er vel, frábærar vegasamgöngur sem þegar eru komnar, sem vonandi verður jafnvel flýtt enn frekar, mjög mikilvægt að sá vegur komi komist í gagnið sem fyrst, alla leið, og líka þá þessi tenging frá Dynjandisheiði yfir á suðurfirðina með Bíldudalsvegi, þannig að ég tel að það væri til mikilla bóta að þessi seinkun næði ekki fram að ganga.

Varðandi aðrar vegasamgöngur á Vestfjörðum var ég í andsvari áðan við hæstv. innviðaráðherra. Ég hef verið að hugsa þetta og ætla að reyna að afla mér frekari upplýsinga um það, ég tel, varðandi jarðgangagerð á Vestfjörðum, jarðgöngin um Mikladal, jarðgöngin um Hálfdan og Súðavíkurgöng, að þau verði boðin út saman til þá einhvers langs tíma. Ég veit að þetta er stór framkvæmd en það breytir því ekki að þetta er alveg grundvallaraðgerð til að bæta lífskjör á svæðinu, jafna lífskjör og líka það að þetta myndi styðja þá atvinnuuppbyggingu í þeirri nýju atvinnugrein sem er komin á fullt skrið á Vestfjörðum.

Ég sat fjórðungsþing Vestfjarða og eftir þingið fórum við í hið nýja sláturhús Arctic fish í Bolungarvík; fjárfesting upp á hátt í 5 milljarða, held ég, byggt á 12 mánuðum, gríðarlega afkastamikið sláturhús og verðmætasköpunin þar er mjög mikil. Það er mjög mikilvægt að innviðaframkvæmdirnar styðji frekar við þessa nýju atvinnugrein. Ég held að laxeldi, bæði á landi og í sjó, muni verða ein af meginstoðum íslensks atvinnulífs, sérstaklega á landsbyggðinni, og muni jafnvel vera meiri verðmætasköpun þar en í hefðbundnum sjávarútvegi. Það hefur verið reynslan í Noregi og það sama mun gerast hér að öllum líkindum. Það er mikilvægt að við styðjum það og þá er líka mikilvægt að við hugum að varnargarði í Bolungarvík og hafnarframkvæmdum á viðlegukantinum í Bolungarvík og það þyrfti helst að koma þessum flutningum á sjó. Mér skildist það að ef framleiðslan verður nægjanleg á Vestfjörðum, í Bolungarvík, þá gæti Eimskipafélagið siglt til Bolungarvíkur eða Ísafjarðarhafnar og sótt vörurnar í Ameríkusiglingum sínum og svo áfram til Ameríku þannig að það er mjög mikilvægt að við styðjum við þessa nýsköpun sem á sér stað, ekki síður en hvernig við styðjum við aðra nýsköpun.

Annað sem mig langar að nefna sérstaklega er Sundabraut. Það er þjóðhagslega hagkvæmasta verkefni sem við getum farið í. Starfshópur um lagningu Sundabrautar með fulltrúum Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Faxaflóahafna og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kynnti niðurstöðu fyrsta áfanga í febrúar 2021. Þar kom fram að niðurstaða hópsins var sú að Sundabrú væri hagkvæmari en jarðgöng. Vó þar þyngst að kostnaður við brúarleið er lægri auk þess sem brú hentar betur fyrir alla ferðamáta og almenningssamgöngur. Þá myndi ný Sundabrú bæta samgöngur innan höfuðborgarsvæðisins og til og frá borginni með því að dreifa umferð, minnka álag á aðra stofnvegi og stytta umferðartíma. Ríki og borg undirrituðu yfirlýsingu í júní 2021 um lagningu Sundabrautar þar sem sammælst var um að Sundabraut yrði lögð alla leið á Kjalarnes í einni framkvæmd og að brautin yrði tekin í notkun árið 2031. Í niðurstöðum félagsfræðilegrar athugunar kemur fram að Sundabraut sé metin þjóðhagslega hagkvæm og feli í sér samfélagslegan ávinning hvort sem hún verði lögð með brú eða göngum. Í heild nemi þjóðhagslegur ábati 186–236 milljörðum kr. eftir útfærslu Sundabrautar með brú eða göngum. Mestur ábati fælist í minni akstri, útblæstri og mengun, styttri ferðatíma vegfarenda og styttum leiðum á höfuðborgarsvæðinu. Heildarakstur á höfuðborgarsvæðinu gæti minnkað um 150.000 km á sólarhring við opnun Sundabrautar en vandamálið er að það er ekki búið að ákveða hvort þetta verði göng eða brú. Ég tel, m.a. í ljósi reynslu minnar af skipulagsvinnu, að það sé alveg gríðarlega mikilvægt að það verði ekki tafir á þessum framkvæmdum. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir Norðvesturkjördæmi; fyrir Vesturland, Vestfirði og Norðurland vestra og raunar Norðurland allt. Það þarf að fara að ákveða strax eiginlega hvort þetta eigi að vera brú eða göng og ég tel augljóst mál að það verði brú, eins og ég hef hér rakið með hagkvæmnina, og þingið þarf að grípa inn í ef það er þannig að tafir verða of miklar.

Tíminn flýgur frá manni hérna í ræðustól en mig langar aðeins að minnast á gjaldtöku. Það er afar mikilvægt að við hugum strax frá fyrstu stigum að því að tryggja að veggjöld leggist ekki á viðkvæmustu hópa samfélagsins sem ekki mega við slíkri fjárhagslegri byrði. Ég er hér að ræða um eldri borgara og öryrkja sem þurfa að ferðast vegna heilsu sinnar um örugga vegi. Það er mjög mikilvægt ef það á að fara að rukka veggjöld að það verði tekið tillit til þessa hóps og að kostnaður við það að ferðast í umferðinni, ferðast um vegi landsins, verði ekki of íþyngjandi.