samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir að mæla hér fyrir tillögu þingsályktunartillögu um samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028. Þegar maður flettir í gegnum þetta mikla rit hugsar maður: Jú, það er hægt að gera mun meira, af hverju við ekki búin að þessu o.s.frv.? En við megum heldur ekki gleyma því að það er búið að gera mjög mikið á undanförnum árum í samgöngumálum. Hæstv. innviðaráðherra hefur verið vakinn og sofinn yfir verkefnunum hér og þar og alls staðar um landið en vissulega getum við gert mun meira. En það er vitaskuld bara um takmarkaða fjármuni að ræða í hverju sinni og við megum ekki eyða um efni fram. Það gleður mig mjög að fletta í gegnum þetta af því að það eru mörg brýn og góð verkefni sem koma hér fram í samgönguáætlun. Ég ætla að leyfa mér, virðulegur forseti, að dvelja bara í mínu kjördæmi, Norðausturkjördæmi, í þessari ræðu og impra á nokkrum góðum framkvæmdum sem þar eru.
Fyrst vil ég nefna mikið baráttumál sveitunga minna í Bárðardal sem snýr að Bárðardalsveg vestari, mjög mikilvæg framkvæmd. Vissulega eru ekki margir íbúar í Bárðardal en þetta er mikil samgöngubót sem fram undan er þarna því að um þennan veg er feikileg umferð þrátt fyrir mjög fáa íbúa. Það er mikill ferðamannastraumur um Bárðardal, ferðamenn á leið að Aldeyjarfossi, ferðamenn á leið upp á Sprengisand o.s.frv. Undanfarin ár hefur vegurinn verið, ja, því sem næst óökufær marga mánuði á ári og er ekki óalgengt að íbúar Bárðardals séu boðnir og búnir og eru reglulega í einhverjum útköllum og að bjarga ferðamönnum hingað og þangað með sprungið dekk, búnir að missa hásingar og annað undan bílnum.
En það er kannski sá veruleiki sem er mjög víða um landið. Það svo sem er þessi innviðaskuld sem við tölum um nú oft um, að hún sé til staðar, og það eru allir meðvitaðir um það. Ég veit að hæstv. innviðaráðherra er sennilega sá ráðherra og sá þingmaður sem er hvað mest meðvitaður um að hvað hægt er að gera hingað og þangað um landið. En ég get nefnt fleiri vegi sem er svo sem ekki talað um í þessari áætlun. Má þar nefna t.d. veg um Útkinn í Þingeyjarsveit, veg um Dalsmynni í Þingeyjarsveit. Það eru víða þessir vegir sem hægt er að fara í en við þurfum að forgangsraða verkefnum.
Þegar kemur að forgangsröðun verkefna þá verð ég bara að fagna því sérstaklega að við eru með Fjarðarheiðargöng nr. 1 í jarðgangaáætlun og ég held að sé óhætt að segja við þingmenn í Norðausturkjördæmi komum til með að sameinast um það að berjast fyrir því að svo verði og það verði ekki einhverjar tafir á þeirri framkvæmd því að mikilvægi þess fyrir sveitarfélagið Múlaþing, og ég tala nú ekki um svæðið, Seyðisfjörð, tenginguna þarna á milli, er gríðarlegt með öllum þeim ferðamannastraumi sem þar er sömuleiðis, sem kemur með ferjunni.
Verkefnin eru svo víða sem við getum horft til. Mig langar að nefna tvær brýr í Norðausturkjördæmi sem eru á Jökulsá á Fjöllum. Þær eru ekki hér í áætlun en þetta eru brýr sem vissulega eru komnar til ára sinna, brýr sem hugsanlega myndu ekki koma til með að standast alvöru vatnavöxt, þ.e. ef það verða jarðhræringar í Vatnajökli o.s.frv., sem verður vonandi ekki alveg á næstunni. En spurningin er líka: Hvað getum við byggt sterkar brýr til að þola þau ósköp ef þau verða? En það er orðið svo að þessar brýr eru, við skulum segja að þær séu barn síns tíma; bogabrýr sem hanga í víravirki á einu stærsta og illvígasta vatnsfalli landsins. Ég held að við ættum að horfa til þess í náinni framtíð og fylgjast með því hvað við getum gert þar. Ég tek það fram að þetta er ekki inni í þessari áætlun. Svo er nú um fleiri verkefni mjög víða um landið en það er verið að vinna að góðum verkefnum mjög víða. Það er t.d. mjög gleðilegt að fara keyrandi um Vestfirði, af því að hv. þm. Eyjólfur Ármannsson var hér í ræðu áðan og ég held að hann hafi nú bara talið upp það sem miður hefur farið í samgöngumálum. En það þarf líka að minnast á það sem vel er gert og það sem búið er að gera og það eru gríðarlegar samgöngubætur sem hafa átt sér þar stað.
Við getum líka minnst á mjög mikilvæga framkvæmd, þ.e. að nú er hægt að keyra á bundnu slitlagi frá Egilsstöðum á Borgarfjörð eystri. Það er virkilega gott og bara fallegur og góður vegur sem þar er. Því hefur verið lokið að koma á bundnu slitlagi inn Fljótsdal — nú er ég ekki alveg viss á áttunum, hvernig þetta snýr þarna, þannig að það er best að ég tali nú ekki um það, en ég myndi segja að þetta sé svona að norðanverðu í Fljótsdalnum, svo að það sé sagt.
En ég get ekki komið hérna upp öðruvísi en að minnast á þá uppbyggingu sem hefur orðið á flugvellinum á Akureyri. Ný flugstöð er að rísa, flughlaðið glæsilega er að verða tilbúið o.s.frv. Það eru hér í áætlun verkefni sem snúa bæði að uppbyggingu á flugvellinum á Húsavík og Egilsstöðum. En ég tek undir með hv. þm. Berglindi Hörpu Svavarsdóttur, sem var hér áðan með góða ræðu sem snýr að Egilsstaðaflugvelli, að það hefur svo sem lítið gerst þar undanfarin ár. En ég vonast til þess að við getum horft til þess í framtíðinni að þar verði enn frekari uppbygging. Þetta er jú varaflugvöllur og við þurfum þar að bæta í það sem snýr að flughlöðum og ýmsu sem snýr að þotum til að koma þarna að brautinni. Þarna er náttúrlega virkilega gott svæði til athafna en vissulega eru ákveðin skipulagsmál eftir sömuleiðis sem snúa þá að landeigendum og öðru sem á væntanlega eftir að ganga frá sömuleiðis, ef ég þekki málið rétt. En það er víða og við þekkjum það alveg þegar á að fara í nýframkvæmdir á vegum í dreifbýli, hvort sem það er við jarðgöng eða nýframkvæmdir á vegum að það getur oft tafið allverulega skipulagsmálin. Og þá er það ekki hægt að sakast eingöngu við ríkisstjórn og fjárveitingavaldið í þeim efnum því að það hafa oft komið upp ákveðin erfið mál því tengdu þegar það kemur skipulagsmálunum þegar leggja á nýja vegi o.s.frv.
Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að fjalla hér um þessa ágætu þingsályktunartillögu um samgönguáætlun. Það hefur verið fróðlegt og gleðilegt að hlusta hér á fínar umræður í dag. Nú er ég ekki í umhverfis- og samgöngunefnd og kem ekki til með að vinna að þessu máli en ég held að það sé óhætt að segja að það á við um alla hv. þingmenn hér í þessu góða húsi að menn hafa allir skoðun á samgöngumálum.